Opið hús: Jörfabakki 30, 109 Reykjavík, Íbúð merkt: 07 03 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. mars 2026 milli kl. 16:45 og kl. 17:15.
Lýsing
Nýlega var skipt um gólfefni á alrými og herbergjum ásamt innihurðum.
Á lóð er gott leiksvæði fyrir börn, leik- og grunnskóli er í næsta nágrenni, stutt að sækja ýmsa þjónustu í Mjódd.
Stærð eignar samkvæmt HMS íbúð 74,7 m2 + herbergi í kj. 10,6 m2.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gott hol þar sem er aðstaða fyrir skirfborð og góður fataskápu.
Eldhús: Upprunaleg innrétting, góður borðkrókur ásamt góðum geymsluská sem er við eldhús en þar er tengi fyrir þvottavél og hilur.
Stofa/Borðstofa: Bjart og opið rými gott pláss fyrir borðsofu ásamt setustofu en þar er gengið út á svalir til suðurs.
Svefnherbergi I: Rúmgott hjónaherbergi með fataskáp.
Svefnherbergi II: Gott barnaherbergi með parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi sem hefur verið endurnýjað að mestu, Walk in sturta með glerskilrúmi, falleg innrétting og skápa ásamt handklæðaofni.
Geymsla í kjallara: stærð er 10,6m2. öðrum sambærilegum herbergjum hefur verið breytt í herbergi, en ekki er ofn inn í rýminu. Geymslan deilir aðgengi að salerni í sameign.
Sameign: Sameiginlegt þurrkherbergi og sameiginleg hjóla og vagnageymsla er í sameign.
Góð eign miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu sem vert er að skoða.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður