Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Grandavegur 11

107 Reykjavík

64.900.000 kr.

964.339 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2025387

Fasteignamat

62.850.000 kr.

Brunabótamat

33.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1989
svg
67,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 28. mars 2026 kl. 13:30 til 14:00

Opið hús: Grandavegur 11, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 01 02. Eignin verður sýnd laugardaginn 28. mars 2026 milli kl. 13:30 og kl. 14:00.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Vel staðsett mikið endurnýjuð 67,3 fermetra tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með sólpalli útfrá stofu, skammt frá Melabúðinni og KR-vellinum. Íbúðin er vel hönnuð, björt og vistleg með rúmgóðri stofu og eldhúsi. Þvottahús og geymsla í einu rými innan íbúðar. Nýlegt parket á gólfum, nýlegt eldhús og nýlegt baðherbergi, stutt í grunn- og leikskóla, sundlaug Vesturbæjar og verslanir á Granda.

Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is sem einnig sýnir eignina. Hringið og ræðið málið í síma 663-2508.

Komið er inn í teppalagðan vel um genginn stigagang. Aðkoma er auðveld og ekki upp tröppur að fara til að komast að íbúðinni.
Þegar gengið er inn í íbúðina er komið í forstofurými, sem er opið til stofunnar til vinstri. Gólfið í forstofurými er flotað og lakkað, sem kemur mjög vel út. Til hægri í forstofu er gengið í þvottahús og geymslu íbúðarinnar, beint framundan er rúmgóður fataskápur. Góð birta kemur inn um stóra suðurglugga í stofu. Þegar gengið er úr forstofurými í stofu er baðherbergi til vinstri, svefnherbergi til hægri. Baðherbergið var allt endurnýjað 2022, með fallegum gráum flísum á veggjum og "microcement" að hluta, baðkari með sturtuaðstöðu, lítilli innréttingu og flotuðu gólfi. Svefnherbergi er rúmgott og bjart, með stórum fataskáp á heilum vegg og útbyggðum glugga sem gefur mikla birtu og skapar gott rými.
Bæði stofa og eldhús eru óvanalega rúmgóð rými fyrir tveggja herbergja íbúð. Stofan er stór og björt með stórum gluggum til suðurs og minni glugga til vesturs í hliðarskoti úr stofunni. Gengið er út um svaladyr úr stofu út á sólpall sem afmarkast af skjólvegg með hliði að garði hússins.
Eldhús er til vinstri þegar gengið er í stofu. Eldhúsið er frá 2023, en þar er falleg grá innrétting með viðarlitri borðplötu, parketi á gólfi, gluggi til suðurs og pláss fyrir lítið eldhúsborð. Uppþvottavél er innbyggð. 
Fallegt nokkurra ára gamalt eikarparket er á öllum meginrýmum eignarinnar, stofu, eldhúsi og herbergi. Flot á baði og forstofu, flísar á þvottahúsi/geymslu.
Sameiginleg hjólageymsla er í húsinu, sem gengið er í utanfrá. Húsið er nýlega múrviðgert þó enn eigi eftir að mála eftir viðgerðirnar og almennt í góði ástandi af því sem best er vitað; múrviðgerðir hafa verið sílanbornar.

Áhugaverð eign, afar vel nýtt, björt og falleg og frábærlega staðsett. Sólpallur með skjólveggjum sem gengið er út á frá stofu.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is

 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. des. 2021
37.750.000 kr.
48.500.000 kr.
67.3 m²
720.654 kr.
3. sep. 2013
19.050.000 kr.
23.000.000 kr.
67.3 m²
341.753 kr.
22. okt. 2012
17.000.000 kr.
21.000.000 kr.
67.3 m²
312.036 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík