Lýsing
Vel skipulagt og fallegt 4-5 herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Birt heildarstærð eignar er 134,2 fm. og þar af er 43,4 fm. innbyggður bílskúr. Stutt er í alla helstu þjónustu skóla, og leikskóla, íþróttaaðstöðu og falleg útivistarsvæði.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
Eignin skiptist í anddyri, 3 svefnherbergi, stofa með útgengi út í garð og eldhús í opnu alrými, baðherbergi, þvottahús, bílskúr (innangengt úr þvottahúsi) og geymsla í bílskúr með glugga og hurð sem mögulegt er að nota sem svefnherbergi.
Nánari lýsing:
Anddyri: Rúmgott, fatahengi og hillur, flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa: Í alrými er rúmgóð stofa / borðstofa, gólfsíðir gluggar sem gefa mikla birtu, útgengi út um rennihurð út á baklóð sem snýr í austur, flísar á gólfi.
Eldhús: Í alrými er eldhús með hvítri innréttingu, innfelld ísskápur og uppþvottavél, bakaraofn og örbylgjuofn, spanhellurborð, flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með hvítum fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott, með hvítum fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott, með hvítum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Með hvítri innréttingu með svartri borðplötu, ljósaspegill, walk in sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Með hvítri innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur, vifta í lofti, innangengt í bílskúr, flísar á gólfi.
Bílskúr: Stærð 43,4 fm., málmaksturshurð, innangengt úr þvottahúsi, bílskúrshurðaopnari, snjóbræðslustýring (forhitari) komin og lagt fyrir snjóbræðslu út í innkeyrslu (3 slaufur), vifta í lofti, flísar á gólfi. Ídráttarrör er fyrir heitan pott út á baklóð og rafmagnsrör út í innkeyrslu.
Geymsla í bílskúr / svefnherbergi 4: Rúmgóð, útgengi út á baklóð. Mögulegt er að nýta þetta rými sem auka svefnherbergi.
Húsið: Er byggt 2022. Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með hvítri liggjandi álbáru og á þaki er svart bárujárn. Gólfhiti er í húsinu, engar stafrænar hitastýringar eru komnar.
Lóð: Lóð og bílaplan eru grófjöfnuð, fín möl er í innkeyrslu á framanverðu, ruslatunnuskýli fyrir 3 tunnur.
Innréttingar: Innréttingar eru frá Ikea.
Innihurðir: Hvítar yfirfelldar innihurðir frá Byko.
Gólfefni: Parket og flísar frá Álfaborg.
Staðsetning: Smellið hér.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í september næstkomandi opnar nýr leikskóli í Þorlákshöfn sem mun bera nafnið Hraunheimar. Hraunheimar er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 18 mánaða til 6 ára. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.