Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Háaleitisbraut 153

108 Reykjavík

77.900.000 kr.

725.326 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2015459

Fasteignamat

66.950.000 kr.

Brunabótamat

48.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1965
svg
107,4 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 13. ágúst 2025 kl. 17:15 til 17:45

Eignin verður sýnd miðvikudaginn 13. ágúst 2025 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.

Lýsing

Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð í nýlega viðgerðu húsi við Háaleitisbraut í Reykjavík. Eignin er skráð 107,4 fm. að stærð, þar af íbúðarrými 101,9 fm og geymsla (rými 0009) 5,5 fm., og skiptist í anddyri/hol, eldhús, þvottahús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og stofu með útgengi á rúmgóðar svalir til suðurs. 

*** Gott skipulag, þrjú svefnherbergi, frábær staðsetning og mikið útsýni. Fyrir nánari upplýsingar og skoðun hafið samband við Brynjólf Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is *** 

Nánari lýsing:
Anddyri:
flísar á gólfi og rúmgóður fataskápur með nýlegum hurðum frá Frífform.
Eldhús: rúmgott með ágætri innréttingu, góðri vinnuaðstöðu, borðkróki og glugga með opnanlegu fagi.
Þvottahús: er í sér rými inn af eldhúsi. Þar er ágæt innrétting og gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi eru flísar.
Baðherbergi: flísar á gólfi og á veggjum, eldri innrétting og baðkar með sturtuhaus. 
Barnaherbergi 1: parket á gólfi, ágætur laus fataskápur frá IKEA innan herbergis og gluggi til norðurs.
Barnaherbergi 2: parket á gólfi og gluggi til norðurs.
Hjónaherbergi: rúmgott með góðum fataskápum frá Fríform, parketi á gólfi og glugga til norðurs.
Gangur: á svefnherbergisgangi er nýlegur fataskápur frá Fríform. 
Stofa: rúmgóð og björt með parketi á gólfi, stórum gluggum til suðurs og útgengi á rúmgóðar svalir.
Stigagangur: snyrtilegur með teppi á gólfi.
Kjallari: er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og rúmgóð sérgeymsla íbúðar.

Á árunum 2021-2022 voru umfangsmiklar framkvæmdir á ytra byrði húseignarinnar þar sem m.a. norðurhlið húseignarinnar var múrviðgerð og máluð, austur- og vesturgaflar ásamt suðurhlið álklædd og aðrir fletir á suðurhlið viðgerðir og málaðir. Þá voru útidyrahurðir endurnýjaðar, svalagólf lagfærð og máluð, svalahandriði endurnýjuð sem og stofugluggar og gluggar á norðurhlið. 

Falleg og vel skipulögð eign í nýlega viðgerðu húsi og vinsælu og grónu hverfi miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, íþróttir sem og leik-grunn-og menntaskóla.


Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is.


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Brynjólfur Snorrason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. apr. 2011
19.600.000 kr.
21.150.000 kr.
107.4 m²
196.927 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík