Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1935
104,7 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Sérinngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Góð 4 herbergja íbúð á 1. hæð í vel staðsettu þríbýlishúsi í Vesturbænum. Vinsæl staðsetning, nálægt háskólasvæðinu. Sérinngangur.Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 101 við Fálkagötu 22, 107 Reykjavík, F2028526. 4 herbergja íbúð á 1. hæð. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 104,7 fm, þar af er íbúðarrými 94,7 fm og sérgeymsla í kjallara hússins er 10 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Sérgeymsla í kjallara.
*** Sækja söluyfirlit ***
Nánari lýsing eignar:
Anddyri, nýlegar flísar á gólfi (2023). Sérinngangur er í íbúðina.
Eldhús er með stórri hvítri innréttingu með viðarborðplötum og góðum borðkrók. Nýlegt spanhelluborð (2023). Parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð, opin og björt, nýlegt parket á gólfi (2023).
Svefnherbergi 1 er rúmgott með fataskápum. Nýlegt parket á gólfi (2023).
Svefnherbergi 2 er rúmgott, ekki með fataskápum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 3 er rúmgott, ekki með fataskápum. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með snyrtilegri hvítri innréttingu. Salerni. Handlaug. Sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél. Handklæðaofn. Opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi.
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara hússins.
Sérgeymsla (10 fm) er í kjallara hússins.
Þak var yfirfarið og viðgert sumarið 2024.
Hiti er sameiginlegur samkvæmt hlutfallstölu. Rafmagn er á sérmæli fyrir íbúðina.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. nóv. 2016
42.600.000 kr.
39.000.000 kr.
104.7 m²
372.493 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025