Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
svg

241

svg

162  Skoðendur

svg

Skráð  4. jún. 2025

fjölbýlishús

Maríugata 11

210 Garðabær

69.900.000 kr.

974.895 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2518273

Fasteignamat

65.750.000 kr.

Brunabótamat

42.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
71,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 9. júní 2025 kl. 12:00 til 12:30

Opið hús: Maríugata 11, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 03 07. Eignin verður sýnd mánudaginn 9. júní 2025 milli kl. 12:00 og kl. 12:30.

Lýsing

Nýtt á skrá! Opið hús - Maríugata 11 Garðabæ - mánudaginn 9. júní klukkan 12:00 - 12:30

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega og vel skipulagða 71,7 fermetra 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með góðum 8,6 fermetra svölum til suðvesturs í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu við Maríugötu 11 í Garðabæ. Vandað hús byggt af ÞG Verk.

Gott alrými sem er opin stofa við eldhús með gluggum til tveggja átta. Útgengi úr stofu á rúmgóðar svalir sem snúa til suðvesturs inn í bakgarð hússins. Leyfi er til þess að setja svalalokun á svalir. Sérgeymsla er 5,4 fermetrar á geymslugangi á jarðhæð hússins. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er staðsett á jarðhæð. 

Um er að ræða fallegt og vandað hús sem er byggt árið 2023. Húsið er álklætt, viðhaldslítið og með fallega frágenginni lóð.
 Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Sameign er snyrtileg með flísum á sameiginlegri forstofu og teppi á stigagöngum. Myndavéladyrasími í íbúðum. Sameiginleg bílastæði á framlóð. Fallegur og stór bakgarður sem er tyrfður.

Staðsetning er virkilega góð þar sem stutt er í verslanir, veitingastaði, kaffihús, leikskóla, grunnskóla og glæsileg útivistarsvæði. Oddur golfvöllur, Urriðavatn og Heiðmörk í göngufjarlægð. Vandað og skemmtilegt leiksvæði fyrir börn sunnan megin við húsið.

Fasteignamat næsta árs (2026) er kr. 68.850.000,-


Nánari lýsing:
Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Með harðparketi á gólfi og gluggum til tveggja átta. Stofa rúmar setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús. Útgengi úr stofu á svalir.
Svalir: Eru 8,6 fermetrar að stærð og snúa inn í bakgarð hússins til suðvesturs. Svalagólf er klætt með viði.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu frá Nobila (GKS). Innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, spansuðuhelluborð, bakaraofn og vifta. Stýranleg lýsing undir skápum og útloftun.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og falleg sprautulökkuð innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Tenglar fyrir þvottavél og þurrkara. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til suðvesturs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skáp og glugga til norðurs.

Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er staðsett í sameign hússins á jarðhæð. 
Sér geymsla: Er staðsett á jarðhæð og er 5,4 fermetrar að stærð.

Húsið að utan: Lítur vel út. Viðhaldslítið og nýlegt (2023) álklætt hús byggt af ÞG Verk. 
Lóðin: Er frágengin, vel hirt, tyrfðar flatir og hellulagðar stéttar.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. jan. 2024
61.400.000 kr.
65.900.000 kr.
71.7 m²
919.107 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur