Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 124,1 m2, 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með ca 50 m2 timbuerverönd í suðurátt, ásamt bílastæði í bílageymslu í nýlegu lyftuhúsi við Bjarkarholt 25 í miðbæ Mosfellsbæjar. Eignin er skráð 124,1 m2, þar af íbúð 113,4 m2 og geymsla 10,7 m2. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús og stofu/borðstofu. Fallegar innréttingar og gólfefni. Rúmgott bílastæði í bílageymslu með hleðslustöð. Einnig eru sameiginlegar hleðslustöðvar á lóð. Sérgeymsla í kjallara. Frábær staðsetning í miðbæ Mosfellsbæjar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp, fatahengi og harðparketi á gólfi.
Eldhús er með fallegri innréttingu og eyju. Í innréttingu er Amerískur ísskápur, ofn, helluborð, innbyggð uppþvottavél og vifta. Gott vinnupláss.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á afgirta timburverönd í suðurátt.
Hjónaherbergi er með fataskápum og harðparketi á gólfi
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt og með sturtu, innréttingu, vegghengdu salerni og handklæðaofn. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi er á baðherbergi.
Sérgeymsla er í kjallara. Er skráð 10,7 m2
Eigninni fylgir bílastæði með hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl í lokaðri bílageymsluleðslustöð.
Íbúðinni fylgir einnig hlutdeild að sameignlegri hjóla- og vagnageymslu.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 87.450.000,-
Verð kr. 97.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.