Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Vista
hæð

Álfhólsvegur 93

200 Kópavogur

112.900.000 kr.

563.655 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2058247

Fasteignamat

112.600.000 kr.

Brunabótamat

90.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1962
svg
200,3 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 10. mars 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Álfhólsvegur 93, 200 Kópavogur. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 10. mars 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Domusnova og Bergþóra Lárusdóttir lgf. kynna góða og vel skipulagða 200,3 fm, 5 herb. efri hæð með bílskúr við Álfhólsveg 93 í Kópavogi. Glæsilegt útsýni!  Rúmgott auka herbergi á jarðhæð sem hentar til útleigu.
Samkvæmt FMR er eignin skráð:
- Íbúð á efri hæð 120,6 fm
- Herbergi, baðherbergi og geymsla á jarðhæð samtals 45,8 fm.
- Bílskúr og geymsla 33,9 fm. 


*** BÓKIÐ SKOÐUN Í SÍMA 895 3868 EÐA Á NETFANGIÐ BERGTHORA@DOMUSNOVA.IS***

Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi á efri hæð. Á jarðhæð er gott íbúðarherbergi (skráð sem 2 herbergi) baðherbergi, geymsla og þvottahús. Á jarðhæð er einnig 23,9 fm bílskúr og 10 fm. geymsla í kjallara bílskúrs.
Nánari lýsing 
2.hæð:
Forstofa: Komið er inn á jarðhæð. Þaðan er stigi upp á 2. hæð.
Hol: Frá forstofu er komið í rúmgott hol með flísum á gólfi.
Stofa / borðstofa: Eru í opnu, björtu rými. Frá stofu er gengið út á vestur svalir með fallegu útsýni. Harðparket er á gólfi. Auðvelt er að bæta við fjórða herberginu út frá stofu.
Eldhús: Bjart með stórum glugga og fallegu útsýni. Ljós innrétting og gráleitar borðplötur. Lítið mál er að bæta við auka skápaplássi. Flísar á gólfi
Herbergi I: Rúmgott og bjart herbergi með góðu skápaplássi og harðparketi á gólfi.
Herbergi II: Bjart herbergi með góðu skápaplássi og harðparketi á gólfi.
Herbergi III: Með harðparketi á gólfi.
Herbergisgangur: Á ganginum fyrir framan svefnherbergin er stór og rúmgóður fataskápur. Við enda gangsins er útgengt á svalir.
Baðherbergi: Með baðkari. Flísalagt hólf í gólf.
Jarðhæð: Sér inngangur er á jarðhæð. 
Herbergi: Bjart og rúmgott herbergi, hentar vel til útleigu. 
Baðherbergi: Á gangi í sameign er sér baðherbergi með salerni og sturtu sem tilheyrir íbúðinni.
Geymsla: Rúmgóð 10 fm. geymsla er á jarðhæð.
Þvottahús: Snyrtilegt og gott þvottahús er í sameign.
Bílskúr: Er sambyggður húsinu að austanverðu, rúmgóð geymsla er undir bílskúr. 
Bílskúrinn er samtals 47,8 fm. og skiptist til helminga milli eigenda efri og neðri hæðar hússins en er í opnu rými.  

Um er að ræða góða og vel staðsetta eign þar sem stutt er í alla helstu verslun og þjónustu.

Nánari upplýsingar veita:
Bergþóra Lárusdóttir löggiltur fasteignasali / s.8953868 / bergthora@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    Ár
    Fasteignamat
    Kaupverð
    Stærð
    Fermetraverð
    10. sep. 2019
    60.650.000 kr.
    61.000.000 kr.
    200.3 m²
    304.543 kr.
    Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone