Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1963
175,8 m²
7 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Þórunnarstræti 83 - 101
Mjög skemmtileg og mjög mikið endurnýjuð fjögurra herbergja neðri sérhæð í tvíbýlishúsi ásamt leiguíbúð á jarðhæð/kjallara sem hefur verið útbúin m.a. úr bílskúr og geymslum og telur um 48 fm. Miklir tekjumöguleikar!
Húsið er töluvert endurnýjað að utan, gler, opnanleg fög hefur verið endurnýjað auk þakdúks og fleira.
Komið er inn í forstofu sem er flísalögð með nýjum glæsilegum flísum, úr forstofu er gengið inn á hol,
Eldhús er með parket á gólfi, með rúmgóðri eldri innréttingu og flísar milli efri og neðri skápa. Tvöfaldur amerískur ísskápur og uppþvottavél sem er hvoru tveggja nýlegt getur fylgt. Bakaraofn í vinnuhæð og glæsilegu útsýni til austurs úr eldhúsi.
Stofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi. Úr stofu/borðstofu er gengið á svalir til suðurs og vesturs.
Á gangi eru þrjú svefnherbergi með parket á gólfi og skápar í tveimur þeirra.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað flísar á gólfi og veggjum að mestu, innrétting í kringum vask með speglaskáp, baðkar, sturta og upphengt salerni auk handklæðaofns.
Þvottahús er með nýjum glæsilegum flísum á gólfi og nýrri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara auk vasks.
Eins og áður segir hefur verið útbúin íbúð á jarðhæð/kjallara sem er um 48 fm. að stærð, gengið er um sameiginlegan inngang af jarðhæð í íbúðina. Skv. teikningu eru nýtingarfermetrar í íbúðinni 43,6 fm. og var hún öll endurnýjuð árið 2018.
Eldhús og stofa eru saman í opnu rými. Gangur leiðir að svefnherbergi og innst er glæsilegt baðherbergi.
Mjög góðir tekjumöguleikar af íbúðinni sem er án leigjanda í dag.
Annað:
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum
-Þak endurnýjað fyrir nokkrum árum, ný grind og eingangrun, niðurföll og nýr dúkur.
-Skipt um gler og lista í íbúð, sólstopp í öllum nýjum glerjum, ný opnanleg fög í íbúðinni.
-Gólfhiti kominn í alla íbúðina með þráðlausum vegghitastillum
-Nýtt parket á allri íbúðinni þar sem er parket
-Nýjar flísar og fataskápur í forstofu
-Baðherbergi endurnýjað
-Ný innrétting í þvottahúsi og nýjar flísar
-Nýjar innihurðir og eldvarnarhurð milli íbúðar og sameignar
-Rafmagnstafla endurnýjuð og annað yfirfarið að einhverju leiti
-Íbúðin öll nýlega heilspörsluð og máluð
-Í aukaíbúð er allt nýtt, gólfhiti, lagnir, innréttingar, gólfefni
-Nýtt skólp, nýjar lagnagrindur og vatnslagnir
-Sér rafmagnstafla fyrir íbúðina á neðri hæðinni
-Búið að draga í nýtt rafmagn
-Nýjir gluggar og gler í aukaíbúðinni með brunaopnun í herbergi.
-Frábært staðsetning, miðsvæðis á Akureyri í göngufæri við framhaldsskóla, Sundlaug Akureyrar og miðbæinn
-Eignin getur verið laus til afhendingar í lok október eða fyrr eftir samkomulagi
-Vart hefur verið við smá leka í hjónaherbergi og líklegt að það sé af völdum sprungu á plötuskilum á norðurvegg hússins
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. maí. 2022
51.500.000 kr.
77.900.000 kr.
175.8 m²
443.117 kr.
17. mar. 2015
25.100.000 kr.
26.000.000 kr.
163.5 m²
159.021 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025