Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Sigríður Kjartansdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1992
svg
188,5 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
svg
Hjólastólaaðgengi

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu algjörlega endurnýjað og stórglæsilegt 188,5 fermetra endaraðhús á einni hæð á eftirsóttum útsýnisstað við Birkihæð í Garðabæ.
Fallegt útsýni er frá stofum út á sjóinn, að Bessastöðum og víðar.  Mjög mikil lofthæð er í húsinu og nýr hljóðdúkur í öllum loftum. 

Árið 2024 var húsið allt innréttað upp á nýtt á afar vandaðan og smekklegan máta og notast við vönduðustu fáanleg byggingarefni.  Þá var skipulagi hússins breytt, lagt gólfhitakerfi í allt húsið, nýjar raflagnir og töflur, ný inntaksgrind sett upp, nýr stór forhitari, ný gólfefni, nýjar innréttingar, ný vönduð innbyggð  tæki í baðherbergi og ný tæki í eldhús. Bitar í loftum hússins voru hækkaðir og settur hljóðdúkur í loft, byggð ný verönd með skjólveggjum og heitum potti og fleira.  Öll lýsing í húsinu er hönnuð af Lumex og öll ljós og rofar eru af vandaðri gerð. Loftræstikerfi er í húsinu og er það allt yfirfarið og endurnýjað. 

Lýsing eignar:

Forstofa, parketlögð og björt með föstum skenk með graníti á borði.
Fataherbergi, um rennihurð með speglum úr holi, flísalagt og rúmgott með sérsmíðuðum innréttingum.
Baðherbergi I, flísalagt gólf og veggir, vegghengt wc., handklæðaofn, innrétting með graníti á borðum og innbyggðum vask úr graníti, fastur spegill með lýsingu í, skápur og flísalögð sturta með innbyggðri hillu í vegg með lýsingu í og sturtugleri.  Mjög vönduð tæki eru í baðherbergi.
Hol, parket- og flísalagt. 
Eldhús, opið við stofur og hol, parketlagt, bjart og rúmgott. Virkilega fallegar og vandaðar Kvik innréttingar og eyja í eldhúsi með graníti á borðum, veggjum og á göflum á eyju.  Stór búrskápur , spanhelluborð í eyju, innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur með frysti, kvörn í vaski og tveir Miele ofnar.  Fastur skenkur á vegg við eldhús er með graníti á borði og innbyggðum vínkæli.
Samliggjandi mjög stórar og bjartar stofur, parketlagðar og með mjög fallegum ethanol arni úr graníti, mjög langri arinhillu / bekk, úr graníti og sérsmíðuðum hillum. Fallegur setkrókur við útbyggða glugga í hluta stofa og tvær nýjar rennihurðir út á afgirta og skjólsæla baklóð með viðarverönd og nýjum heitum potti. 
Herbergi I, um rennihurð frá stofum, er parketlagt og rúmgott með gólfsíðum gluggum. 
Gangur, parketlagður og með innbyggðum miklum fataskápum á tveimur veggjum.  Skápar eru með rennihurðum með speglum á. 
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með útgengi á afgirta og skjólsæla viðarverönd til suðurs.  Veggur í svefnherbergi er klæddur með viði og graníti.
Baðherbergi II, innaf hjónaherbergi.  Flísalagt gólf og veggir, vegghengt wc., tveir handklæðaofnar, innrétting með graníti á borði og á vegg, tveir innbyggðir vaskar úr graníti í innréttingu, stór fastur spegill með lýsingu í og veggskápar. Stór flísalögð sturta með innbggðri hillu með lýsingu í og sturtugleri.  Mjög vönduðu tæki eru í baðherbergi.

Bílskúr, sem innangengt er í úr forstofu, er tvöfaldur og með tveimur nýjum innkeyrsluhurðum og nýjum mótorum.  Gólf er flísalagt, miklir skápar á tveimur veggjum og innrétting með vinnuborði og vaski.
Þvottaherbergi, innaf bílskúr, flísalagt gólf, innrétting með innbyggðu straubretti, vinnuborði og vaski.  Miklar hillur eru í þvottaherbergi.

Húsið að utan er í góðu ástandi.  Þakpappi er nýr og skipt hefur verið um rennihurðir á suðurhlið hússins auk glers og glugga á suðurhlið að mestu.
Lóðin er virkilega falleg með stórri hellulagðri innkeyrslu á framlóð sem er nýendurgerð, snjóbræðsla yfirfarin og sett ný stýring á hana. Hellulögð stétt með hitalögn undir og fallegur trjágróður.
Á baklóð er stór og skjólsæl afgirt viðarverönd með heitum potti.  Frá verönd er fallegt útsýni að Bessastöðum, Reykjanesi og út á sjóinn. 

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum og grónum stað í Hæðarhverfinu í Garðabæ.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. okt. 2023
120.800.000 kr.
156.000.000 kr.
188.5 m²
827.586 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone