Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Liljugata 5

270 Mosfellsbær

67.500.000 kr.

967.049 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2512328

Fasteignamat

58.450.000 kr.

Brunabótamat

47.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
69,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 8. september 2026 kl. 16:30 til 17:00

Lýsing

** Opið hús þriðjudaginn 8. september frá kl. 16:30 til 17:00 -  Liljugata 5, íbúð 104 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 69,8 m2, 3ja herbergja endaíbúð á 1. hæð í nýlegu húsi (byggt 2021) við Liljugötu 5 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 69,8 m2, þar af íbúð, 67,5 m2 og geymsla 2,3 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Sérgeymsla er á 2. hæð. Hellulögð verönd til suðurs með skjólgirðingu. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl er á sameiginlegu bílastæði fyrir íbúa hússins.
Frábær staðsetning, stutt frá Helgafellsskóla og næstu strætóstoppistöð. Stutt í fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði. Húsið er hannað og teiknað af Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar. Byggingaraðili var Byggingarfélagið Bakki ehf. 


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:
Anddyri er með harðparketi á gólfi og hvítum forstofuskáp.
Stofa og eldhús eru í opnu rými með harðparketi á gólfi. Hvít eldhúsinnrétting frá HTH með AEG blástursofni, helluborði og viftu. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með harðparketi á gólfi og hvítum fataskápum með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi 2 er með harðparketi á gólfi og hvítum fataskáp. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, baðinnréttingu, handklæðaofni og sturtu. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Gluggi er á baðherbergi.
Sérgeymsla 2,4 m2 er í sameign á 2. hæð.

Á jarðhæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla. Gert er ráð fyrir að hverri íbúð fylgi eitt bílastæði fyrir framan húsið.

Liljugata 5 er 2ja hæða fjölbýlishús með 8 íbúðum. Fjórar íbúðir eru á hverri hæð. Húsið er staðsteypt og einangrað að utan og klætt með bárujárni. Stigagangur er teppalagður. Lóð er fullfrágengin og 10 bílastæði eru á lóðinni. Gönguleið að húsi er hellulögð með snjóbræðslu. 

Verð kr. 67.500.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. okt. 2023
49.950.000 kr.
59.200.000 kr.
69.8 m²
848.138 kr.
9. ágú. 2021
3.300.000 kr.
46.800.000 kr.
69.8 m²
670.487 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ