Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Vista
fjölbýlishús

Austurhólar 2

800 Selfoss

64.900.000 kr.

639.409 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2526760

Fasteignamat

64.250.000 kr.

Brunabótamat

60.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
101,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Lyfta

Lýsing

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í sölu rúmgóða 4herb. 101,5fm endaíbúð á 2. hæð í lyftublokk á mjög vinsælum stað í austurhluta bæjarins. Þaðan er stutt í alla helstu þjónustu og nýbyggður leikskóli á næstu lóð við húsið. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd að utan með viðhaldslitlum klæðningum. Byggt árið 2023.  Afhending við kaupsamning.  Frábært útsýni. Hægt að skoða samdægurs.

Forstofa með góðum skápum fyrir yfirhafnir og gangur inn í íbúðina til vinstri. Þar eru þrjú góð svefnherbergi, tvö þeirra með skápum. Geymsla/þvottahús á vinstri hönd sem og baðherbergið. Þar er flísalögð sturta með glerþili, upphengt klósett og handlaug á innréttingu frá Milton. Innst í íbúðinni er opið rými stofu og eldhúss og gengt út á rúmlega 7fm vestur-svalir. Í eldhúsi er falleg innrétting frá Milton, skápar með viðaráferð/Hnota og ljúflokur á öllu. Led lýsing undir efri skápum, borðin dökk/Quarts og öll eldhústæki frá Electrolux.  Vínilparket er á öllum gólfum íbúðarinnar nema í votrýmum, þar eru ljósar flísar.  Hjóla/vagnageymsla í sameign í kjallara.  

Hringið og bókið skoðun.

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is 

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
       
                                                                                                          
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. des. 2023
51.100.000 kr.
56.460.000 kr.
101.5 m²
556.256 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum