Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
104,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax
Opið hús: 11. maí 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Skjólbraut 11, 200 Kópavogur. Eignin verður sýnd mánudaginn 11. maí 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Sigríður Rut, lgfs. gsm 699-4610 og Fasteignasalan TORG kynna: Fallega, rúmgóða og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi í nýlegu fjórbýlishúsi á einum eftirsóttasta stað í vesturbæ Kópavogs. Íbúðin er 104,9 fm með aukinni lofthæð, tveimur bílastæðum og 30 fm sérafnotafleti í suðurgarði. Bjart og opið alrými með útgengi á sólríka suðurverönd er hjarta heimilisins. Vandaðar HTH innréttingar og eldhústæki frá Bræðrunum Ormsson setja svip á rýmið, ásamt fallegu harðparketi frá Parka. Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi/geymslu, aðalrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Eignin hefur verið uppfærð á smekklegan og nútímalegan hátt frá 2024, m.a. með snjallstýrðu rafkerfi (BTicino Living Now), innfelldri dimmanlegri lýsingu, uppfærðu baðherbergi og bætt við góðri þvottahúsinnréttingu í geymslu.
Frábær staðsetning í grónu og fjölskylduvænu hverfi í göngufæri við Sundlaug Kópavogs, skóla og alla helstu þjónustu.  
Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is 


Nánari lýsing
Gengið er niður hægri hlið hússins. Stiginn er forsteyptur með hita í. 
Sérinngangur. Snjóbræðsla er undir hellum fyrir framan inngang.
Gólfefni eru flísar og harðparket frá Parka.
Forstofa: Með fataskáp og flísum á gólfi.  
Svefnherbergi 1: Rúmgott og bjart er inn af stofu með skáp.
Hjónaherbergi 2: Rúmgott og bjart með stórum fataskáp.
Gangur/Skrifborðsaðstaða: Við enda gangs hefur verið útbúin sniðug vinnuaðstaða með föstu skrifborði og hirslum.
Eldhús/stofa og borðstofa: Mynda opið og bjart alrými. Útgengt út á góða suðurverönd frá stofu.
Eldhús: Bjart og með fallegri innréttingu frá HTH, spanhelluborð, ofn, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur frá Bræðurnir Ormsson.
Baðherbergi: Innrétting frá HTH og ikea efri skápur og upphengdur skápur ásamt fallegum spegli með baklýsingu. Flísalagt gólf og að hluta veggir. Upphengt salerni. Sturtuþil úr hertu gleri. 
Geymsla/þvottaherbergi: Er rúmgóð með góðri innréttingu og tæki í vinnuhæð. Flísalagt gólf.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 
Sér sorptunnuskýli sem rúmar þrjár ruslatunnur.
Tvö bílastæði fylgja. Bílastæði eru hellulögð. Snjóbræðsla er undir öllum hellum og í stiga. Rafmagnsröri er komið fyrir í bílastæði þannig að einfalt er að setja upp rafbílahleðslu.
Staðsetning: Einstök staðsetning í grónu hverfi í vesturbæ Kópavogs þar sem stutt er í sundlaug Kópavogs, Menntaskólann i Kópavogi og barnaskóla. Tveir leikskólar, Gerðasafn og Salurinn allt í göngufæri. Skemmtilegar göngu og hjólaleiðir í nágrenninu.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is 



Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.



 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. apr. 2024
34.850.000 kr.
87.300.000 kr.
104.9 m²
832.221 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone