Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þröstur Ástþórsson
Sigurdur Sigurbjornsson
Vista
einbýlishús

Vallarás 5

260 Reykjanesbær

109.900.000 kr.

500.912 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2332326

Fasteignamat

107.750.000 kr.

Brunabótamat

119.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2018
svg
219,4 m²
svg
5 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

M2 fasteignasala kynnir - í einkasölu Snyrtilegt 5.herbergja einbýlishús ásamt bílskúr við Vallarás 5 í Njarðvík, Reykjanesbæ.

* Fjögur rúmgóð svefnherbergi
* Flott útsýni frá eigninni
* Led lýsing í loftum
* Gert ráð fyrir tveimur baðherbergjum

Forstofa er með flísar á gólfi og fataskápum. 
Sjónvarpshol er fyrir miðju, hátt til lofts og flísar á gólfi. 
Eldhús er opið við stofu, hvít innrétting með ofn í vinnuhæð, mikið skápapláss. Gert var ráð fyrir að setja steinborðplötu sem er eftir ásamt helluborði og auka frágangi.
Stofa er með flísar á gólfi og útgengt er út á baklóð frá stofu/eldhúsi.
Þrjú barnaherbergi með skápum og flísum á gólfi.
Hjónaherbergi er með skápum og flísum á gólfi, gert ráð fyrir sérbaðherbergi innaf hjónaherbergi. Búið að gifsa, setja wc kassa og leggja lagnir, eftir er að klára flísalögn og innréttingar. Til eru flísar, handklæðaofn, vaskur og blöndunartækið.
Aðalbaðherbergi er mjög rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, walk-in sturta, stór innrétting með tveimur vöskum og pláss fyrir baðkar. 
Þvottahús er með hvítri innréttingu, flísar á gólfi, skolvask og útgengt út í lóð.
Bílskúr er inngengur frá þvottahúsi, flísar á gólfi og bílskúrhurðaopnari.

Lóð er með möl í innkeyrslu og tyrft kringum hús, búið er að jarðvegsskipta þar sem gert var ráð fyrir verönd. 

Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða siggi@fermetri.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

M2 Fasteignasala & Leigumiðlun

M2 Fasteignasala & Leigumiðlun

Hólmgarður 2c, 230 Reykjanesbær
phone
M2 Fasteignasala & Leigumiðlun

M2 Fasteignasala & Leigumiðlun

Hólmgarður 2c, 230 Reykjanesbær
phone