Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado
Vista
einbýlishús

Áshlíð 10

603 Akureyri

89.900.000 kr.

522.978 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2144860

Fasteignamat

76.200.000 kr.

Brunabótamat

78.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1965
svg
171,9 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Laus strax

Lýsing

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955- Einkasala

Áshlíð 10

**Eignin getur verið laus við kaupsamning**

Skemmtilegt og vel skipulagt einbýlishús með stakstæðum bílskúr á vinsælum stað í Glerárhverfi. Eignin stendur á hornlóð og er garðurinn bæði gróinn og skjólsæll og snýr til vesturs eins og timburverönd sem við það stendur. Eignin er samtals 171,9 fm. en þar af er bílskúr 28 fm. og stendur efst á lóðinni. 


Eignin skiptist í forstofu, stofu og borðstofu, eldhús, búr, baðherbergi, 4 svefnherbergi og þvottahús og geymslu þar sem einnig er bakdyrainngangur. 

Forstofa er með flísar á gólfi og þar er ný útidyrahurð. 
Stofa og borðstofa er í mjög björtu og opnu rými með parket á gólfi og upptekið loft. Útgengt er úr borðstofu á timburverönd með fallegri lýsingu eins og er líka í garði. 
Eldhús er með parket á gólfi, hvítri innréttingu með stæði fyrir 45 cm. uppvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. Þá er borðkrókur og búr inn af eldhúsinu með glugga og opnanlegu fagi. 
Svefnherbergi eru fjögur, öll á svefnherbergis palli sem er hálfri hæð ofar en önnur rými. Það er parket á gólfi og skápar í tveimur þeirra.
Baðherbergi er einnig á hæðinni, þar eru flísar á gólfi og veggjum að hluta, baðkar með sturtutækjum, innrétting í kringum vask með speglaskáp og gluggi með opnanlegu fagi. 
Þvottahús og bakdyrainngangur er við hlið eldhúss. Þar eru flísar á gólfi og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.  

Bílskúr er stakstæður, með nýlegri innkeyrsluhurð og þá er inngönguhurð á austurhlðinni. Rafmagn er í skúrnum. Gott bílastæði er fyrir framan bílskúr. 

Annað: 
-Í búri sem er inn af eldhúsi eru ofnalagnir sem hægt er að tengja og var það rými upphaflega hugsað sem herbergi.
-Rafmagn hefur verið endurnýjað að öllu leiti, bæði dregið í og skipt um allt í töflu
-Gluggar og hurð í stofu og útidyrahurðir eru nýjar frá Skanva
-Búið að skipta um einhverja ofna 
-Hitaþráður í rennum
-Stutt í nýjan ungbarnaleikskóla og grunnskóla auk verslunar og þjónustu ýmiskonar
-Húsið er teiknað af Mikael Jóhannessyni arkitekt

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
bjorn@byggd.is


Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. apr. 2008
26.345.000 kr.
24.000.000 kr.
171.9 m²
139.616 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone