Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Kolagata 2

101 Reykjavík

130.000.000 kr.

1.405.405 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2363662

Fasteignamat

101.500.000 kr.

Brunabótamat

78.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
92,5 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Frábær, björt þriggja herbergja íbúð á 3. hæð á Hafnartorgi. Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík með mannlífi allt um kring, stutt í alla helstu þjónustu og verslun, sögu og menningu. 3 m lofthæð, 2,5 m háar innihurðir. Tvö baðherbergi. Glæsileg íbúð. Selst fullbúin með innbúi. 

Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is 

Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 311 við Kolagötu 2, 101 Reykjavík, F2363662. 3ja herbergja íbúð á 3. hæð. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð 92,5 fm en þar af er geymsla í kjallara 7,9 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, borðstofu og stofu í alrými, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla í kjallara. Íbúum Hafnartorgs stendur til boða að leigja bílastæðakort samkvæmt verðskrá.

*** Smelltu hér til að sækja söluyfirlit ***

Nánari lýsing:
Anddyri með fataskápum, lýsing að innan og harðparket á gólfi. 
Eldhús með vandaðri innréttingu frá Noblessa (GKS) með ljúflokum á skápum og skúffum. Hvít Meganite borðplata, innbyggður vaskur og klæðning milli skápa er úr sama efni. Vola blöndunartæki í eldhúsi og einnig eru vönduð tæki frá Siemens. Blástursofn og helluborð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Dunavox vínkælir og gufugleypir er frá Elica.
Stofa og borðstofa eru í opnu alrými ásamt eldhúsi, útgengt er á svalir sem vísa í suðaustur. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi með góðum fataskápum með lýsingu. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi, flísalagt með ítölskum flísum. Innrétting frá Noblessa með Meganite borðplötu og innbyggðum vaski úr sama efni. Mini Glo Ball speglalýsing frá Flos og Vola hreinlætistæki. Rúmgóð "walk in" sturta.
Herbergi 2 með fataskápum með lýsingu. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi með vandaðri innréttingu frá Noblessa með Meganite borðplötu og innbyggðum vaski úr sama efni. Mini Glo Ball speglalýsing frá Flos ásamt Vola hreinlætistæki. Rúmgóð "walk in" sturta. 
Þvottahús með vandaðri innréttingu og vaski. Flísar á gólfi. 
Geymsla (7.9 fm) er í kjallara.
Sameiginleg hjólageymsla er í kjallara. 

Arkitektar hússins eru PKdM arkitektar en stofan var hönnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt sem vinnur í samstarfi með Fernando de Mendonca og öflugu teymi arkitekta frá öllum heimshornum. Byggingaraðili hússins er ÞG Verktakar ehf og Guðbjörg Magnúsdóttir sá um innanhússhönnun.
Hafnartorg skartar 70 hágæða íbúðum í miðbæ Reykjavíkur. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur.

Undir húsunum er stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar og stendur íbúum Hafnartorgs til boða að leigja bílastæðakort samkvæmt verðskrá.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. ágú. 2024
83.150.000 kr.
112.000.000 kr.
70311 m²
1.593 kr.
19. júl. 2024
83.150.000 kr.
115.000.000 kr.
70311 m²
1.636 kr.
13. maí. 2024
83.150.000 kr.
109.000.000 kr.
70311 m²
1.550 kr.
19. mar. 2019
62.400.000 kr.
64.581.000 kr.
93.1 m²
693.673 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík