Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Reynimelur 72

107 Reykjavík

84.900.000 kr.

799.435 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2026091

Fasteignamat

71.400.000 kr.

Brunabótamat

45.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1967
svg
106,2 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 2. september 2024 kl. 16:30 til 17:00

Lýsing

*** NÝTT Á SKRÁ - LAUS STAX ***
Heimili fasteignasala og Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali sími 774-7373, kynna 4-5 herbergja 106,2 fm. enda íbúð á 3. hæð á góðum stað í Vesturbænum.  Íbúðin er nýmáluð og nýtt parket á öllum gólfum, nema herbergjum og allir gluggar endurnýjaðir, nema gluggi við svalir.  Snyrtileg sameign og komið hefur verið upp rafhleðslustöð við húsið.  Gluggar á þrjá vegu, sólríkar svalir og útsýni gefa eigninni aukið gildi.


Komið er inn í opna forstofu og áfram inn í hol og stofu.  Lágur veggur skilur að stofu og borðstofu en má færa til fyrra horfs, einnig má auðveldlega bæta þar við herbergi, henti það nýjum eiganda.  Bjart eldhús með hvítri viðarinnréttingu, borðkrókur og stór gluggi.  Stuttur gangur þar sem farið er inn í herbergin þrjú, eldri skápar í hjónaherbergi og í holi. Baðherbergi er innst á ganginum en þar er komið að viðhaldi.

Sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús eru í kjallara. Hjólageymslan er við hlið aðalinngangs og þægilegt að fara inn og út með hjól. Sameign hússins er snyrtileg. Stutt í leiksvæði og stór garður fyrir neðan húsið að sunnanverðu. Snyrtileg lóð og gott bílaplan er fyrir framan húsið.

Húsið hefur verið töluvert endurnýjuð á síðustu árum s.s. gluggar og gler eftir þörfum svo og frárennslislagnir.

Eignin er á mjög eftirsóttum stað í botnlanga á Reynimel í Vesturbæ Reykjavíkur, þar sem stutt er í skóla og leikskóla, íþróttasvæði KR, Vesturbæjarlaug, verslun, þjónustu og fjölbreytta afþreyingu sem Vesturbærinn hefur löngum státað af. 
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali í síma 774 7373 eða ragnar@heimili.is


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Ragnar Þorgeirsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Ragnar Þorgeirsson

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Ragnar Þorgeirsson

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík