Opið hús: Naustabryggja 3, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 02. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 14. apríl 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Góðar suðursvalir. Þvottahús er innan íbúðar. Stutt á stoðbrautir og í alla helstu þjónustu. Sérstæði í bílakjallara.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Íbúðin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 100 fm en þar af geymsla í sameign 6,7 fm.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Nánari lýsing á eign:
Forstofa er parketlögð með góðum fataskáp.
Eldhús með fallegri innréttingu með stóru helluborði, tengi fyrir uppþvottavél og parket á gólfi.
Borðstofa/stofa er rúmgóð og björt og er aukin lofthæð í hluta rýmis. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I er mjög rúmgott með fataskáp og aukna lofthæð. Parket á gólfi. Útgengt á suðursvalir.
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III er mjög rúmgott með fataskáp og aukna lofthæð. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með baðkari og sturtu og góða innréttingu.
Þvottahús/geymsla er innan íbúðar.
Snyrtilegur stigagangur.
Sérgeymsla í sameign í kjallara
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Sérmerkt bílastæði í bílakjallara.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.