Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 89,9fm og þar af er geymsla 3,2fm.
Nánari lýsing:
Anddyri með harðparketi á gólfi.
Stofa/borðstofa björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi.
Eldhús með nýrri fallegri innréttingu með helluborði, ofni, háf, innbyggðum ísskáp, innbyggð uppþvottavél og parket á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, handklæðaofn, upphengdu salerni, speglaskáp með led lýsingu og flísum á gólfi og hluta veggja. Hreinlætistæki voru endurnýjuð árið 2018 og er frá Byko.
Geymsla er á jarðhæð hússins.
Þvottahús er í sameign á jarðhæð þar sem hver íbúð er með tengi fyrir sína vél.
Blokkin var sprunguviðgerð að utan árið 2018
Sameign er mjög snyrtileg, á gólfum eru nýleg gólfefni.
Nýlega endurnýjað hitaveitu ofna og lagnir þar sem þess þurfti, allar ofnlagnir voru úr eir og eru þær heillegar.
Neysluvatnslagnir voru endurnýjaðar árið 2018 og frárennsli að plötu 1. hæðar.
Blokkin verður öll máluð að utan að kostnað seljandi sumarið 2025.
Íbúðirnar eru á Ásbrú sem er ört stækkandi samfélag á Suðurnesjum og stutt er í alla þjónustu og skóla. Einungis er um 30-40 mínútna akstur frá Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5940 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.