Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Lilja Valþórsdóttir
Hákon Ólafur Hákonarson
Vista
fjölbýlishús

Bogabraut 963

262 Reykjanesbær

46.200.000 kr.

488.372 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2504272

Fasteignamat

40.050.000 kr.

Brunabótamat

39.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1970
svg
94,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

PRODOMO fasteignasala kynnir rúmgóða og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á þriðju hæð að Bogabraut 963 í Reykjanesbæ.  

Eignin var mikið endurnýjuð 2019. Harðparket á gólfum er frá Parka sem og hurðar og fataskápar. Baðherbergi hefur verið endurnýjað, þar eru flísar frá Álfaborg og innrétting frá Parka. Sérsmíðuð eldhúsinnrétting frá Parka, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Rafmagn hefur verið endurnýjað og eru rofar og tenglar nýlegir. Einnig er búið að endurnýja rafmagnstöflur.
Búið er að skipta um neysluvatns lagnir, ofnalagnir og ofna. Þak og þakkantur var yfirfarið og málað og blokkin einangruð að utan og klædd með ál klæðningu. 

Nánari lýsing íbúðar 304:
Forstofa
með með parketi á gólfi, lítið rými er inn af forstofu sem hugsað er fyrir skófatnað og útiföt.
Eldhús með parketi á gólfi og nýlegri fallegri hvítri innréttingu með helluborði, ofni og viftu. Þar er innbyggður ísskápur og uppþvottavél. 
Stofa / sjónvarpshol með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á rúmgóðar svalir.
Svefnherbergin tvö eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í báðum herbergjum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta til. Þar er nýleg hvít innrétting og baðkar með sturtu.
Sérmerkt bílastæði fylgir eign og uppsettir staurar fyrir rafmagnshleðslustöð.

Þvottaaðstaða er  á hverri hæð og er sameiginleg fyrir allar íbúðirnar á hæðinni, þar eru vínilflísar á gólfi. Sér geymsla er í sameign, þar er epoxylakk á gólfi.  Sameign er mjög snyrtileg, á gólfum eru vínil dúkur og teppi.

Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
hakon@prodomo.is

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
lilja@prodomo.is 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.


 

img
Hákon Ólafur Hákonarson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
PRODOMO fasteignasala
Hafnargötu 15, 230 Keflavík
PRODOMO fasteignasala

PRODOMO fasteignasala

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
phone
img

Hákon Ólafur Hákonarson

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. des. 2022
25.700.000 kr.
37.000.000 kr.
94.6 m²
391.121 kr.
27. feb. 2020
25.150.000 kr.
27.500.000 kr.
94.6 m²
290.698 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
PRODOMO fasteignasala

PRODOMO fasteignasala

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
phone

Hákon Ólafur Hákonarson

Hafnargötu 15, 230 Keflavík