Lýsing
FastMos ehf. kynnir: Falleg 2ja herbergja 58,5 m2 íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi Vindás 2, 110 Reykjavík, innst í Seláshverfi. Eignin er skráð 58,5 m2, þar af íbúð 54,5 m2 og geymsla 4 m2. Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi. Frábær staðsetning, stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. Útivistarsvæði í Elliðaárdalnum eru í næsta nágrenni sem og Árbæjarlaug og íþróttasvæði Fylkis. Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og góðu skápaplássi.
Stofa er björt með parket á gólfi og útgengi á svalir.
Eldhús er með parket á gólfi, hvítri U-laga innréttinu, bakarofni í vinnuhæð, helluborði og háfi. Gert er ráð fyrir ísskápi og uppþvottavél í innréttingu.
Svefnherbergi með parket á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, handlaug, upphengdu salerni og sturtuklefa.
Sérgeymsla er í sameign. Skráð 4,0 m2.
Í sameign er sameiginlegt þvottahús og hjóla- og vagnageymsla.
Samkvæmt seljanda og húsfélagi hefur húsið fengið töluvert viðhald undanfarin ár eftir úttekt frá árinu 2017 og umtalsverðar viðgerðir gerðar á ytra byrði hússins, eins og klæðning, þak og gluggar og gler að hluta. Skipt var út hurðum í öllum íbúðum árið 2023 og settar reykvarnar hurðir með hljóðeinangrun.
Verð kr. 50.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.