Lýsing
Miklaborg kynnir: fallega og bjarta 67,8 fm 2ja til 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með góðum palli í suður. Íbúðin var mikið endurnýjuð fyrir nokkrum árum.
NÁNARI LÝSING: Komið inn í hol sem leiðir þig í allar vistaverur íbúðarinnar. Eldhús er með fallegri hvítlakkaðri innréttingu, stórri eldunareyju og vönduðum tækjum. Eldhús er opið inn í stórar stofur með útgengt á stóran afgirtan sérafnotarétt. Stofan er með gluggum á þrjá vegu og er sérlega björt. Auðvelt er að breyta annarri stofunni í rúmgott herbergi. Baðherbergið er nýlega endurnýjað og er með sturtu, upphengdu salerni og lítilli innréttingu. Hjónaherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi. Geymsla er innan íbúðar og þar hefur verið útbúin þvottaaðstaða með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
GÓLFEFNI: Fallegt harðparket er á öllum gólfum nema baðherberginu sem er flísalagt í hólf og gólf.
Húsið hefur fengið gott viðhald á síðustu árum. Húsgjöld íbúðar eru 12.865 kr. á mánuði.
Allar nánari upplýsingar veita
Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is