Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Árni Björn Kristjánsson
Helen Sigurðardóttir
Vista
fjölbýlishús

Skyggnisbraut 2

113 Reykjavík

79.900.000 kr.

727.025 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2356412

Fasteignamat

78.750.000 kr.

Brunabótamat

62.420.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2016
svg
109,9 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Palsson Fasteignasala kynnir:

Vel skipulögð og björt fjögurra herbergja endaíbúð, sannkölluð útsýniseign í nýlegu lyftuhúsi.
Húsið er staðsett efst á hæðinni við Úlfarsárdal í Reykjavík.

* Bílastæði í lokuðum bílakjallara
* Einstakt útsýni til suðurs og austurs

* Fordæmi eru fyrir leyfi fyrir gæludýrum í stigagangi
* Afhending getur verið fljótlega eftir kaupsamning
* Rúmgott þvottahús og geymsla innan íbúðar
* Innréttingar frá HTH


Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar samkv. Fasteignaskrá Íslands er 109,90 m2 og fyrirhugað fasteignamat 2025 er 78.750.000 kr. 
 
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu / borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílastæði. 
Anddyri er með fataskáp og parket á gólfi.
Eldhús er með L-laga innréttingu, gott skápapláss, bakarofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur með frysti og tengi fyrir uppþvottavél. 
Stofa / borðstofa er í rúmgóðu alrými með eldhúsi með stórbrotnu útsýni frá gluggum og útgengt út á svalir til suð-austurs.
Svefnherbergin eru þrjú með fataskápum og parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með "walk-in" sturtu, upphengdu salerni, háum skáp og innréttingu með skápum og handlaug.
Þvottahús er flísalagt með rúmgóðri innréttingu fyrir vélar í vinnuhæð og skolvaski. 
Geymsla er með parket á gólfi. Fordæmi eru í öðrum eignum að nýta sem skrifstofu eða svefnrými.
Sér-bílastæði er í bílakjallara þar sem hefur verið lagt rafmagsnkapall fyrir 3ja fasa hleðslustöð.
Í sameign á jarðhæð er sameiginleg vagna og hjólageymsla.

Frábær staðsetning í vinsælu og nýlegu hverfi í Úlfarsárdal í Reykjavík. Stutt er að sækja grunnskóla, leikskóla, íþróttir og fallegar gönguleiðir svo fátt eitt sé nefnt. Þá er einnig margvísleg verslun og þjónusta á næsta leiti.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. okt. 2020
48.350.000 kr.
88.200.000 kr.
1994.1 m²
44.230 kr.
21. sep. 2020
47.600.000 kr.
49.500.000 kr.
109.9 m²
450.409 kr.
15. feb. 2018
44.250.000 kr.
49.400.000 kr.
109.9 m²
449.500 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík