Lýsing
LANDMARK kynnir: Falleg 4ra herbergja 122,7 fm útsýnisíbúð á fjórðu og efstu hæð innst í botnlangagötu í Kórahverfi Kópavogs. Stæði í bílageymslu fylgir. Glæsilegt útsýni til austurs og suðurs. Frábært fjölskylduhverfi þar sem skóli, leikskóli og íþróttaaðstaða er í göngufæri. Einnig stutt í hestamannasvæði og náttúruperlur. Smelltu hér fyrir söluyfirlit
*** Nýlega búið að mála glugga að utan, endurnýja ljós í göngum og skipta um hurð í bílageymslu.***
Forstofa er flísalögð með fataskáp. Rúmgott hol er inn af forstofu.
Stofan og borðstofan eru í opnu og björtu rými og þaðan er útgengt út á 17,5 fm svalir með glæsilegu útsýni.
Eldhúsið er með viðarinnréttingu og borðkróki.
Svefnherbergin eru þrjú öll með fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með sturtu, baðkari, handklæðaofni og fallegri innréttingu.
Þvottahús er innan íbúðar með góðri innréttingu.
Flísar eru á gólfum og dúkur. Í sameign er sérgeymsla íbúðar ásamt sameiginlegum rýmum.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.
Upplýsingar veitir Sveinn Eyland Lgf í síma 690-0820, sveinn@landmark.is og Sigurður Samúelsson, ss@landmark.is
---------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat