Lýsing
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands alls 114,8 fm þar af er íbúðin 94,8 fm og geymsla í sameign 7 fm. Bílastæði í kjallara 13 fm.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2025 verður kr. 59.700.000
*** BÓKIÐ SKOÐUN ***
Nánari lýsing á eign:
Forstofa: Gengið er inn í forstofu með góðum skáp. Parket á gólfi.
Eldhús: Snyrtilegt með fallegri ljósri innréttingu góðu skápaplássi, bakaraofn og helluborð ásamt tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa þar sem er útgengt út á svalir með fallegu útsýni. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtilegt með ljósri innréttingu, baðkari, og salerni. Flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergi: Eru tvö talsins, eitt virkilega rúmgott með góðum skápum og eitt minni herbergi. Lítið mál er að útbúa þriðja herbergið og yrði það einnig með opnanlegum glugga. Parket á gólfi.
Þvottahús: Er staðsett inn af baðherbergi með góðu plássi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameign: Sameiginleg hjólageymsla, sér geymsla og merkt bílastæði í bílakjallara með tengi fyrir hleðslustöð fylgir eigninni.
Endurbætur síðustu ár:
2019-2021 - Húsið tekið í gegn að utan, múrviðgert og klætt, svalir brotnar niður og byggðar upp aftur og sett ný handrið. Skipt um þak ásamt því að skipt var um alla glugga að undanskildum eldhúsglugganum og skipt um gler í svalahurð.
2021 - Parketlagt eign með vínyl parketi frá parka ásamt því að ofnar í svefnherberjum endurnýjaðir.
2022 - Loft í alrými íbúðar máluð og stofuveggur. Einnig var bílakjallari málaður að innan og sett í hann ný rafmagnstafla ásamt hleðslustöðvum.
2023 - Ný innrétting með tvöföldum vaski og sturtugler sett inn á baðherbergi. Ný rafmagnstafla í sameign ásamt nýju dyrasímakerfi.
2024 - Bílageymsla máluð að utan og skipt um loftljós í sameign.
Um er að ræða frábæra eign með góðu skipulagi á besta stað í Seljahverfinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla og skóla.
Allar nánari upplýsingar um eignina veita:
Viktoría R. Larsen, Löggiltur fasteignasali í síma 6185741 eða á netfanginu viktoria@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.