Lýsing
OPIÐ HÚS VERÐUR Í HAFNARGÖTU 29, ÍBÚÐ 101, LAUGARDAGINN 1. FEBRÚAR KL. 14:00-14:30.
Upplýsingar veitir: Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 862-5270 eða petur@husaskjol.is
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR HAFNARGÖTU 29 ÍBÚÐ 101.
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt verðmat á þinni eign.
Húsaskjól og Pétur Ísfeld, löggiltur fasteignasali, kynna til sölu: Vel skipulagða og nýlega tveggja- til þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í Hafnargötu 29 í 230 Reykjanesbæ með fasteignanúmer 2506557 með inngangi af stigagangi. Birt stærð eignar er skráð 106,9 fm, þar af íbúðarrými 94,4 fm og geymsla 12,5 fm. Íbúðin skiptist í alrými með borðstofu og eldhúsi, stofa/herbergi, hjónaherbergi með fatarými, baðherbergi, þvottahúsi, auk verönd sem er 37,5 fm. Lyfta er í húsinu og hjóla of vagnageymsla er í sameign.
Hér er hægt að skoða stutt yfirlitsmyndband af Hafnargötu 29
Nánari lýsing
Anddyri: Gengið inn af teppalögðum stigagangi inn á parket gólf og horft inn í alrými. Góður fataskápur er á vinstri hönd fyrir aftan hurðina, og pláss er fyrir fatahengi, skóhillu og spegil á hægri hönd.
Eldhús og borðstofa: er með miklu skápaplássi, með hvítri áferð og borðplötur og hliðar á eyju með marmara áferð. Góð lýsing, skipulag og vinnupláss er til staðar. Í eldhúsi er helluborð í eyju með háf yfir, uppþvottavél, vaskur, ofn í góðri vinnuhæð og innbyggður ísskápur. Gott pláss er fyrir borðstofuborð í alrými við stofu/herbergi en einnig er pláss fyrir 2-3 við eyjuna. Á gólfi er parket.
Stofa/herbergi: er með stórum gólfsíðum gluggum með hurð út á verönd sem gerir rýmið bjart og notalegt. Óhindrað útsýni er í norð austur, út á Stakksfjörð og í átt að Reykjavík. Þetta er rými sem býður upp á mikla möguleika. Búið er að setja upp léttvegg milli alrými og stofu sem auðvelt væri að fjarlægja eða halda. Á gólfi er parket.
Hjónaherbergi: er bjart og rúmgott með góðum glugga, stóru fatarými og á gólfi er parket. Pláss er fyrir tvíbreytt rúm, náttborðum og snyrtborði, skrifborði eða barnarúmi.
Baðherbergi: er með steingráar flísar á gólfi og veggjum. Rúmgóð hvít innrétting með marmara áferð á borðplötu með miklu frálags- og skápalássi er undir vaski, og stór spegil er yfir vaskinum. Vinstra megin við spegil er einnig skápur. Í baðherberginu eur rúmgótt sturturými upphengt klósett og handkæðaofn.
Þvottaherbergi/geymsla: er með pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Pláss er fyrir hillur eru á veggjum og snúrur til að hengja upp þvott. Á gólfi eru steingráar flísar.
Verönd: er með viðar pallaefni og lágri viðar girðingu sem er með óhindrað útsýni er í norð austur, út á Stakksfjörð og í átt að Reykjavík.
Geymsla: er staðsett í kjallara.
Sameign: er lyfta og einnig er vagna- og hjólageymsla þar sem samkomulag er um notkun.
Hér er hægt að nálgast teikningar af eign
Upplýsingar veitir: Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 862-5270 eða petur@husaskjol.is
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði