Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
svg

400

svg

325  Skoðendur

svg

Skráð  17. jan. 2025

fjölbýlishús

Dugguvogur 7

104 Reykjavík

69.900.000 kr.

928.287 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2511147

Fasteignamat

65.600.000 kr.

Brunabótamat

53.980.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
75,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Nýtt á skrá! Dugguvogur 7 Reykjavík - Bókið skoðun.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega og vel skipulagða 75,3 fermetra 3 herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu við Dugguvog 7 í Reykjavík. Vandað hús byggt af ÞG Verk. Yfirbyggðar svalir og sérstæði í bílakjallara. 

Íbúðin skiptist í opið alrými, sem rúmar setustofu og borðstofu, og er opið við eldhús. Tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Svalir með opnanlegri svalalokun. Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara á góðum stað. Góð 7,6 fermetra sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Sameign er snyrtileg með flísum á sameiginlegri forstofu og teppi á stigagöngum. Lyklalaust aðgengi á flestum hurðum í sameign og kjallara. Nýlegt myndavélakerfi í bílakjallara. Myndavéladyrasími í íbúðum. Bílnúmeramyndavélar á innkeyrsluhurðum í bílakjallara sem lesa bílnúmer við innakstur.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík. Leikskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni.


Nánari lýsing:
Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Með harðparketi á gólfi og útgengi á svalir. Stofa rúmar setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús. 
Svalir: Eru með svalalokun og viðarfjölum á svalagólfi.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu með eyju frá Nobila (GKS). Innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, spansuðuhelluborð, bakaraofn og eyjuháfur. Stýranleg lýsing undir skápum og útloftun.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og falleg sprautulökkuð innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og útloftun. 
Svefnherbergi I: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til vesturs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til vesturs.

Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 7,6 fermetrar að stærð. Málað gólf.

Bílastæði í lokuðu bílskýli: Vel staðsett. Myndavélavaktaður bílakjallari og aðgangsstýring (myndavélar) á bílakjallara.

Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett við bílageymslu og með útgengi á baklóð hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. des. 2021
22.700.000 kr.
56.900.000 kr.
75.3 m²
755.644 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur