












Lýsing
Miklaborg kynnir: Vesturvin 1 (Mýrargata 43A) er glæsileg bygging með metnaðarfullri hönnun á frábærum útsýnisstað í Vesturbæ Reykjavíkur. Húsið er staðsett örstutt frá verslun og þjónustu og í 10-15 mín. göngufæri frá miðbæ Reykjavíkur. Afhending íbúðar verður í janúar 2025.
Allar frekari upplýsingar gefur Þröstur Þórhallsson lgf sími 897-0634 eða throstur@miklaborg.is
búð 503 er 4ra herbergja íbúð á 5. hæð með bæði vestur og suður svölum. Frábært útsýni út á flóann með Snæfellsjökull í bakgrunni. Íbúðarrýmið skiptist í góða og bjarta stofu/eldhús með útgengi á svalir sem snúa út á hafið. Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi með ásamt þvottaherbergi.
Íbúðirnar afhendast með hágæða ítölskum innréttingum frá Cassina og er innréttingaþema íbúðarinnar Sær. Vönduð tæki frá Miele og Siemens. Steinborðplötur og gólfsíðir gluggar. Allar íbúðir eru með gólfhita.
Nánar um verkefnið hér á heimasíðu þess HÉR.
Nánari upplýsingar veita sölumenn:
Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is