Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Mánagata 22

105 Reykjavík

41.900.000 kr.

1.157.459 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2010962

Fasteignamat

33.450.000 kr.

Brunabótamat

15.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1940
svg
36,2 m²
svg
1 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 24. febrúar 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Mánagata 22, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 24. febrúar 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Domusnova og Vilborg kynna nýtt á sölu:
MJÖG SJARMERANDI 2ja HERBERGJA ÍBÚÐ AÐ MÁNAGÖTU 22, 105 REYKJAVÍK

ÍBÚÐIN ER Í KJALLARA HÚSS SEM ER TVÆR HÆÐIR OG KJALLARI. 
SEX ÍBÚÐIR ERU Í HÚSINU.  

GÓLFEFNI ENDURNÝJUÐ
GÓLFHITI
BAÐHERBERGI ENDURNÝJAÐ AF FYRRI EIGANDA.
NÝLEG ELDHÚSINNRÉTTING.


Íbúðin sjálf er 33,9 fm og geymslan er 2,3 fm.
Hafið samband við Vilborgu í síma 891 8660 eða vilborg@domusnova.is til að bóka skoðun.
Lýsing eignar:
Komið er inn í hol.
Eldhús og stofa er í einu opnu rými með harðparketi á gólfi. Skipt var um eldhúsinnréttingu.  Þvottavél í eldhúsi.  Sameiginlegt þvottahús í húsi.
Baðherbergi með sturtu, flísalagðir veggir, epoxýgólf.  Nýr vaskur (4 ára)  sem og spegill á vegg.
Svefnherbergi með harðparketi á gólfi.(Þar var áður eldhús)
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er í kjallara hússins. Gengið er inn í það utanfrá. 
Geymsla: í kjallara er einnig sér geymsla íbúðar.  Hún er köld og er 2,3 fm.  Gengið er inn í hana frá þvottahúsi.
Gólfefni: Harðparket,  hiti í gólfi. (Undir parketi eru flísar sem fyrri eigandi lagði)

MIKLAR ENDURBÆTUR HAFA VERIÐ GERÐAR Á ÍBÚÐINNI SEM OG HÚSINU:
  • Neysluvatnslagnir hafa verið endurnýjaðar í íbúð.
  • Nýleg eldhúsinnrétting, blöndunartæki og bakaraofn.  (Ikea)
  • Skipt var um hitaveitu í öllum íbúðum í húsinu en ekki á íbúð 00 02 þar sem það hafði áður verið gert. 
  • Þvottahús hefur verið málað nýlega. 
  • Nýjar ferskvants - og frárennslislagnir settar upp í stigagangi.
  • Frárennslis- skolplagnir hafa verið endurnýjaðar út úr húsinu.
  • Settur var nýr brunnur og dæla í kyndiklefa hússins.
  • Búið er að leggja drenlagnir í kringum húsið.  
  • Nýlega (f.nokkrum árum) var rafmagnstafla í sameign endurnýjuð. Sér rafmagnstafla íbúðar er framan við inngang hennar.
  • 2022 var húsið sprunguviðgert. (að hluta)
SAMEIGINLEGUR GARÐUR UMHVERFIS HÚSIÐ.
FRÁBÆR STAÐSETNING Í GÖNGUFÆRI VIÐ MIÐBORG REYKJAVÍKUR.
FRÁBÆR 1.KAUP. 


Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.8918660 / vilborg@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • img
    Vilborg Gunnarsdóttir
    Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
    Domusnova fasteignasala
    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    img

    Vilborg Gunnarsdóttir

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    Ár
    Fasteignamat
    Kaupverð
    Stærð
    Fermetraverð
    12. maí. 2020
    21.950.000 kr.
    23.400.000 kr.
    36.2 m²
    646.409 kr.
    31. maí. 2017
    14.850.000 kr.
    19.900.000 kr.
    36.2 m²
    549.724 kr.
    Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone

    Vilborg Gunnarsdóttir

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur