Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1964
210 m²
7 herb.
3 baðherb.
5 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Útsýni
Sérinngangur
Laus strax
Lýsing
Hlíðarvegur 65, einstakt og sjarmerandi einbýlishús á einni hæð með sérbyggðum bílskúr á frábærum stað í Kópavogi á mjög skjólgóðri og gróinni hornlóð með frábæru útsýni til suðurs.
Húsið er selt.
Eignin er skráð 210 fm og getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.
Fellur húsið einstaklega vel inn í landslagið og gróðurinn þar sem það stendur langt frá götunni á mjög stórri og gróinni 1.474 fm suður hornlóð á skjólsælum og frábærum útsýnisstað í miðjum suðurhlíðum Kópavogs.
Stórt óbyggt og gróið heimaland Kópavogsbæjar er fyrir ofan og við austurhlið hússins þar sem þetta er endahúsið á Hlíðarveginum austanmegin.
Til suðurs fyrir framan húsið eru heldur engin hús og fyrir neðan Hlíðarveginn er risastórt og fallega skipulagt útisvæði sem umlykur Digraneskirkju og nær alveg niður að Kópavogslæk.
Opið hús verður auglýst síðar.
Til að fá nánari upplýsingar og panta einkaskoðun er best að senda tölvupóst á Vilhjálm Bjarnason á ekkifjarfestir@gmail.com einnig má senda sms í 8228183.
Húsið er og var frábærlega vel hannað og skipulagt í upphafi og skiptist á eftirfarandi hátt:
Forstofa og ytri forstofuhol.
Gesta WC með glugga.
Gamli kyndiklefinn með glugga, notaður sem geymsla.
Innri forstofa með stóru fatahengi og hillu.
Geymsla með glugga.
Stórt og bjart rými með stórum glugga fyrir miðju húsinu sem tengir saman nánast öll önnur rými hússins, mætti nýta sem sjónvarpshol.
Frá holinu er fyrst gangur og lítil geymsla / búr með útgönguhurð í garðinn bílskúrsmegin.
Einnig eru frá þessum gangi þrjár tröppur upp í svefnálmu hússins þar sem er svefnherbergisgangur með útgönguhurð í garðinn austanmegin.
Þrjú barnaherbergi, aðalbaðherbergi hússins með baðkari og glugga og mjög stór og björt hjónasvíta með skápum og innangengt í sérrými með vask og sturtu.
Aftur á aðalhæðina en þar er stórt þvottahús með mikilli innréttingu og glugga.
Skrifstofa með glugga er inn af stofunni en það mætti einnig nýta hana sem herbergi.
Stórt og mjög fallegt upphaflegt eldhús með fallega grænmálaðri og vel umgenginni innréttingu, flísalögðum háf og vönduðum tækjum enda þótti eldhúsið á þeim tíma og þykir ennþá allt vera óvenju vandað, fallegt og vel hannað.
Frá eldhúsinu er innangengt í þvottahúsið, stóra holið og yfir í borðstofuna og stofuna.
Borðstofan og stofan eru eitt stórt og einstaklega fallegt rými með viðarklæddum og hallandi uppteknum loftum og gluggum eftir endilöngu rýminu.
Útgönguhurð er á suðurlóð hússins frá borðstofuhlutanum.
Lóðin er stór og mjög gróin 1.474 fm enda hornlóð á skjólsælum og frábærum útsýnisstað í miðjum suðurhlíðum Kópavogs.
Hlíðarvegur 65 hefur frá upphafi verið í eigu sömu fjölskyldunnar þar sem foreldrar núverandi eigenda byggðu húsið 1964 af miklum myndarskap eins og það ber með sér og bjuggu þar í 60 ár alveg fram í janúar 2024.
Húsið og bílskúrinn eru steypt og svo pokapússuð að utan eins og það var kallað þegar steypt hús voru ekki slétt múruð en þetta "hráa" útlit kemur mjög vel út á þessari eign.
Húsið er vel íbúðarhæft þó það þurfi að gera eitthvað áður en flutt er inn, en það eru líka miklir möguleikar í þessu húsi og raunar í lóðinni líka ef út í það er farið.
Bílskúrinn er sérbyggður og skráður 33 fm, rafmagn og ljós en óupphitaður þar sem eigandinn vildi það því hann geymdi bílana sína á hverjum tíma inni og taldi það skemma bílana að fara inn í heitan bílskúr á veturna, sem er almennt viðurkennt í dag. Innst í enda bílskúrsins er hækkun á gólfinu sem núverandi eigendur minnir að hafi verið vega þess að það væri klöpp þar undir.
Einnig er sagt að hætt hafi verið við að hafa kjallara í húsinu eins og gert var ráð fyrir á upprunalegu teikningunum vegna þess að það væri klöpp undir allavega hluta af húsinu.
Samkvæmt HMS er eignin skráð samtals 210 fm, þar af er húsið sjálft 177 fm, byggt 1964 og bílskúrinn er 33 fm, byggður 1972.
Sennilega er hægt að fá leyfi til stækkunar á bæði húsinu og bílskúrnum ef vilji væri til þess að nýjum eigendum en það þarf alltaf að fá leyfi Byggingarfulltrúa fyrir öllum breytingum.
Þar sem búið er að byggja um 100 fm bílskúr / vinnustofu með mikilli lofthæð á næstu lóð við hliðina þá ætti að vera hægt að fá leyfi til að byggja allavega 100 fm bílskúr / vinnustofu / studío þar sem bílskúrinn er í dag.
Til dæmis gæti þessi nýja bygging verið á tveimur hæðum að hluta eða öllu leyti og væri frábært að byggja t.d. vinnustofu / studio með glerframhlið og jafnvel aukaíbúð bakatil.
Húsið er byggt 1964 og bílskúrinn 1972 og virðast í heild vera í ágætu standi miðað við aldur en eins og alltaf þegar um eldri hús er að ræða þá ráðleggjum við öllum sem skoða allar eignir að fá fagaðila til að skoða eignir með sér áður en gert er tilboð og sérstaklega með tilliti til aldurs eigna almennt.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. apr. 2025
139.350.000 kr.
142.000.000 kr.
10101 m²
14.058 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025