Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
fjölbýlishús

SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf

953 Spánn - Costa Blanca

47.100.000 kr.

511.957 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F3031110

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
92 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR Á FRÁBÆRUM STAÐ VIÐ LA FINCA GOLFVÖLLINN*

Sérlega vandaðar og fallegar, vel skipulagðar og rúmgóðar nýjar íbúðir á einni hæð á frábærum stað í stuttu göngufæri frá klúbbhúsinu við hinn glæsilega La Finca golfvöll og 1. teig. Hægt er að velja um 3ja eða 4ra herb. íbúð á neðri hæð með sér garði eða efri hæð með sér þakverönd. Aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði með góðri sólbaðsaðstöðu. Um 30 mín akstur suður frá Alicante. Sérlega glæsilegar íbúðir með góðu alrými, tveimur eða þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum og geymslu. Stæði í bílakjallara. Lyfta.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is, Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869
og Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 00354 777 4277. Karl@spanareignir.is

Nánari lýsing:

Komið er inn í gott alrými og skiptist það í gott eldhús og stofu/borðstofu í rúmgóðu alrými. Útgengi út á verönd og sér garð, eða svalir með útgengi upp á rúmgóðar þaksvalir, eftir því hvort íbúð á efri eða neðri hæð verður fyrir valinu. 
Hjónasvíta með sér baðherbergi og stórum fataskáp. Auk þess annað svefnherbergi og annað baðherbergi ef 3ja herb. íbúð, en tvö svefnherb. auk hjónasvítu ef valin er 4ra herb. íbúð.
Aðgengi að glæsilegum sameiginlegum sundlaugargarði.
Fallegt umhverfi.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
LYFTA.
Hægt er að kaupa aukalega stæði í bílakjallara ásamt sér geymslu.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í örstuttu göngufær við nýja og flotta klúbbhúsið á La Finca golfvellinum 5* golf og spa hótel og nýjan og glæsilegan þjónustukjarna þar sem er að finna  gæðaveitingastað, vínsmökkun og verslanir. Stutt í verslunar og þjónustukjarna á La Finca, og svo einnig í skemmtilega litla spænska bæði eins og Ciudad Quesada og Algorfa. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Vistabella, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

Ca. 20 mín akstur er niður á ströndina og ca. 20 mín akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. 

Frábærar íbúðir á góðu verði fyrir kröfuharða golfara og fólk sem kann að njóta lífsins.
Fyrstu áfangar UPPSELDIR. NÝR ÁFANGI kominn í sölu.

Verð, gengi 1 evra = 145 ISK:
3ja herb. íbúð:  Verð frá 275.000 Evrur  (39.800.000 ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.
4ra herb. íbúð:  Verð frá 325.000 Evrur (47.100.000 ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn.við kaupn.

Til  afhendingar í desember 2025 - mars 2026.
Frábær leið til að festa sér góða íbúð á flottum stað.

Á sama stað eru líka í boði glæsileg parhús og einbýlishús.

Bein kaup frá traustum byggingaraðila. 
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka til að auðvelda kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, þakverönd, sundlaugargarður, air con, golf, útsýni, bílakjallari,
Svæði: Costa Blanca, La Finca,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.