Lýsing
Góða þriggja herbergja 77,8 fm íbúð á 2. hæð við í Þórufell 10 í Reykjavík. Yfirstandandi eru viðgerðir/endurbætur á þaki hússins, seljandi greiðir framkvæmdirnar.
*Tvö rúmgóð svefnherbergi.
*Laus til afhendingar við kaupsamning.
*Skjólgóðar svalir í vestur með ágætu útsýni, leyfi fyrir svalalokun.
Stærð: 77,8 fm; íbúð 72,2 fm (05-0203), geymsla 5,6 fm (05-0104).
Eignin skiptist í hol, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofu og geymslu.
Sækja hér söluyfirlit samstundis
Nánari lýsing
Hol er með parketi á gólfi.
Eldhús er aflokað með hvítri eldhúsinnréttingu á tveimur veggjum, tengi fyrir uppþvottavél, eldavél með helluborði, gufugleypir yfir. Borðkrókur innst undir glugga.
Svefnherbergi I er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi II er með fataskáp sem fylgir og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum með salerni, baðinnréttingu, baðkari með sturtu yfir.
Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi, útgengi á svalir í vestur.
Eignin fæst afhent við undirritun kaupsamnings
Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 / julius@landmark.is
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is
Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöf
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat