Lýsing
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Samkvæmt fasteignayfirliti er eignin skráð 92,1 fm og þar af er geymsla skráð 5,7 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol með flísar á gólfi og góðan yfirhafnaskáp.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi.
Borðstofa er mjög rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á góðan timburpall/sérafnotareit í suð-vestur.
Eldhús með fallegri innréttingu, flísar á gólfi og milli skápa, háf yfir eldavél og tengi fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum skáp og parket á gólfi. Búið að gera falskan vegg við rúmgafl með innfelldri lýsingu sem kemur mjög skemmtilega út.
Svefnherbergi II er rúmgott með með skáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, baðkari með sturtu, tengi og gott pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla íbúðar í sameign á jarðhæð.
Sameiginleg frystigeymsla þar sem hver íbúð er með sitt læsta hólf í sameign á jarðhæð.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign á 1. hæð.
Vinsæll staður miðsvæðis í Breiðholtinu og stutt á stofnæð, íþróttir og skóla og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.