Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Pálmason
Vista
svg

464

svg

368  Skoðendur

svg

Skráð  10. mar. 2025

fjölbýlishús

Vesturgata 14

101 Reykjavík

45.900.000 kr.

1.162.025 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2000592

Fasteignamat

41.550.000 kr.

Brunabótamat

20.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1911
svg
39,5 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega og sjarmerandi 39,5fm, 2ja herbergja risíbúð með sérinngangi að Vesturgötu 14, 101 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 200-0592 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Íbúðin er nokkuð undir súð og því gólflötur íbúðar stærri en uppgefnir fermetrar gefa til kynna. Eignin skiptist í anddyri, hol, alrými með samliggjandi eldhúsi og stofu, svefnkrók og baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Eigninni fylgir hlutdeild í sameiginlegri geymslu í kjallara (4,3fm). Afar falleg og sjarmerandi íbúð á rólegum og vinsælum stað í miðbæ Reykjavíkur. Frábær staðsetning við Grófina, Höfnina og kvosina. Þá er Grandinn í ca. 10 mín göngufjarlægð.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@fastm.is

Nánari lýsing eignar 0201:
Anddyri:
Komið inn um sérinngang. Gengið inn fyrir aftan hús. Tröppur upp í íbúð úr anddyri.
Hol: Tengir saman alrými, svefnskála og inngang í baðherbergi. Tvöfaldur fataskápur í holi við baðherbergi.
Alrými: Opið, bjart og fallegt rými með samliggjandi eldhúsi og stofu.
Stofa: Rúmgóð og björt. Opin og samliggjandi eldhúsi.
Eldhús: Innrétting með efri og neðri skápum, flisar á milli skápa. Opið og samliggjandi við stofu.
Svefnskáli: Opið við hol. Möguleiki á að setja upp vegg og gera lokað svefnherbergi.
Baðherbergi: Rúmgott með sturtuklefa, baðinnréttingu með skápum, vask og speglaskáp fyrir ofan vask. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Línoleum dúkur á gólfi og veggjum.

Gólfefni: Upphafleg viðarborð á gólfi að undanskyldu baðherbergi sem er með línoleum dúk á gólfi.

Eignin Vesturgata 14 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-0592, birt stærð 39.5 fm. Brúttófermetrar 47,3fm / Nettófermetrar 42,3fm. Eigninni fylgir hlutdeild í sameiginlegri geymslu í kjallara (4,3fm), þar sem lagnagrind hússins er staðsett. Einn hitamælir er fyrir allt húsið og skiptist hitaveitureikningur skv. hlutfallstölum eigna í húsinu. Sér rafmagnsmælir er fyrir hverja séreign og sér mælir fyrir sameign.

Húsið er kjallari, hæð og rishæð. Kjallari er steyptur en hæðin og risið er bárujárnsklædd timburbygging með bárujárni á þaki. Í húsinu eru 3 íbúðir allar með sérinngang.

Lóðin fyrir húsið að Vesturgötu 14 er 333fm eignarlóð, sameiginleg og óskipt. Engin bílastæði eru á lóðinni.


Sameign er sameiginleg geymsla 4,3 fermetrar í kjallara með sérinngangi.

Bílastæðahúsið að Vesturgötu 7 er í aðeins um 2 mínútna göngufjarlægð frá íbúðinni. Hægt er að kaupa mánaðarkort í bílastæðahúsið fyrir 18.800kr á mánuði. Einnig eru almenn bílastæði meðfram Vesturgötunni. Hægt er að kaupa íbúakort 1.450 krónur á mánuði fyrir bifreiðar sem ganga eingöngu fyrir rafmagni eða vetni.2.900 krónur á mánuði fyrir aðrar bifreiðar.
Hér má lesa sig til um Íbúakortin á vef Reykjavíkurborgar


Falleg, vel skipulögð og sjarmerandi risíbúð á eftirsóttum stað í nokkra mínútna göngufjarlægð frá Grófinni, Kvosinni og Höfninni í miðbæ Reykjavíkur. Nálægðin við iðandi mannlíf miðborgarinnar setur hverfið í flokk eftirsóttustu hverfa borgarinnar. Menningin blómstrar í miðborginni og það að búa í göngufæri við leikhús, kvikmyndahús og tónlistarhús býður upp á einstaka möguleika og mikil lífsgæði. Fjölmörg kaffihús og fjölbreytt úrval veitingastaða eru í næsta nágrenni. Nokkra mínútna göngufjarlægð í margar helstu perlum miðborgarinnar eins og gömlu höfnina, kvosina, Listasafn Reykjavíkur, Borgarbókasafnið, Þjóðleikhúsið, Hörpuna, Austurvöll, Laugarveginn, Skólavörðuholtið og svo mætti lengi áfram telja.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur hreidar@fasteignamidlun.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Fasteignamiðlun

Fasteignamiðlun

Grandagarði 5, 101 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. ágú. 2012
12.600.000 kr.
13.700.000 kr.
39.5 m²
346.835 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignamiðlun

Fasteignamiðlun

Grandagarði 5, 101 Reykjavík