Lýsing
Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Snyrtilega og bjarta 77,3 fm 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í nýlegu staðsteyptu fjölbýlishúsi og klætt að utan með bárujárni. Í íbúðinni er gólfhiti. Stutt er í alla almenna þjónustu eins og t.d. grunn- og leikskóla, verslanir og veitingastaði.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is
Forstofa er með flísum á gólfi og upphengi.
Hol er með parketi á gólfi og skáp.
Stofa er með parket á gólfi og þaðan er útgengt á hellulagða verönd.
Eldhús er með parket á gólfi, snyrtilegri viðarinnréttingu þar sem eru hvítir neðri skápar og dökkir efri skápar. Vifta sem er yfir helluborði mun ekki fylgja með í kaupum þessum.
Svefnherbergin eru tvö og eru með parketi á gólfum og skápum.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og hluta veggja, opin sturta, upphengt wc, skápar undir vask og handklæðaofn.
Þvottahús er á baðherbergi þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar og þar er parket á gólfi og skápar og gluggi með opnanlegt fag og gæti því nýst sem aukaherbergi.
Hjóla- og vagnageymsla stendur í sérhúsi á lóð, ásamt því að bílaplan er malbikað.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.