Lýsing
Um er að ræða vel skipulagða og bjarta 3ja herbergja 90.5 fm endaíbúð á þriðju hæð í vönduðu lyftuhúsi á frábærum stað í Urriðaholti í Garðabæ.
Frábær staðsetning þar sem að stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu og útivistarsvæði.
Með íbúð eru rúmgóðar vestur svalir.
ÍBÚÐ ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands: Íbúð er 90.5 fm merkt 01-03-04.
Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
Eignin skiptist í:
Forstofu/hol, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, rúmgóðar suð-vestur svalir sem að mögulegt væri að yfirbyggja (loka).
Nánari lýsing á eign:
Komið er inní forstofu með innbyggðum fataskápum.
Stofa/borðstofa er opið og bjart rými með gluggum á þrjá vegu og er útgengt á rúmgóðar 14 fm suð-vestur svalir úr stofu.
Eldhús er opið inn í stofu/borðstofu og er snyrtileg hvít U-laga innrétting í eldhúsi með efri og neðri skápum, eldunareyja með helluborði og er gufugleypir ofan við eyju, innbyggður ísskápur í innréttingu og uppþvottavél.
Tvö svefnherbergi og eru fataskápar í báðum herbergjum.
Baðherbergi er nokkuð rúmgott með flísum á gólfum og veggjum að hluta, Walk-in sturtuklefi, vegghengt salerni, handklæðaofn, snyrtileg innrétting er undir vask með útdraganlegum skúffum.
Á baðherbergi er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla á jarðhæð.
Gólfefni: Harðparket og flísar á gólfum eignar.
VANDAÐAR INNRÉTTINGAR OG FATASKÁPAR FRÁ PARKA OG AEG TÆKI Í ELDHÚSI.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat