Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Hrísateigur 16

105 Reykjavík

59.900.000 kr.

1.005.034 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2016970

Fasteignamat

54.750.000 kr.

Brunabótamat

29.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1945
svg
59,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 22. mars 2025 kl. 15:00 til 15:30

Opið hús: Hrísateigur 16, 105 Reykjavík, risíbúð. Eignin verður sýnd laugardaginn 22. mars 2025 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.

Lýsing

ELKA lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna virkilega sjarmerandi 4ra herbergja rishæð við Hrísateig 16 í þríbýlishúsi á einum besta stað Reykjavíkur.  
Skráð stærð skv. FMR er 59,6 fm en gólfflötur er nokkuð stærri þar sem hluti er undir súð og geymsla í kjallara er ekki inní fermetratölu eignar.
Íbúðin skiptist í eldhús og samliggjandi stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.  Þvottahús og sér geymsla er í sameign á jarðhæð.

Allar upplýsingar veitir Elka í síma 863-8813 eða á netfangið elka@fstorg.is

Nánari lýsing
Komið er inn um sameiginlegan inngang af jarðhæð og þaðan gengið uppá 2. hæð hússins um nokkuð brattan stiga.
Gengið er inní alrými íbúðarinnar sem skiptist í hol, eldhús, borðstofu og stofu í opnu fallegu rými með útgengi á vestur-svalir.
Svefnherbergin eru þrjú og eru að hluta til undir súð, dúkur á gólfum herbergja.
Baðherbergið er lítið og nett, flísalagt með sturtuklefa og innréttingu.
Eldhús er með fallegri innréttingu og er í sameiginlegu björtu rými með borðstofu og stofu. Útgengi á vestursvalir.  Eikarparket er á stofu og eldhúsi.
Sameiginlegt þvottahús er staðsett í kjallara þar sem hver íbúð er með eigin vél og þar er líka sér geymsla fyrir risið sem er ekki inní fermetratölu eignar.. 
 
Húsið sjálft er í fínu ástandi, var málað fyrir ca 9 árum síðan og tröppur uppsteyptar á sama tíma.  Skipt var um þak árið 2018 (litað ál) og fjórir gluggar endurnýjaðir. Styttist í að endurnýja þurfi glugga í svefnberbergi á vesturhlið ásamt baðherbergi.
Lagnir og dren var endurnýjað árið 2005, ný heimæð og brunnar endurnýjað.  Húsið drenað og frárennslislagnir endurnýjaðar.
Hússjóður; 6.500 kr. á mánuði / engar yfirstandandi né fyrirhugaðar framkvæmdir.

Falleg og björt eign á vinsælum stað í hjarta Reykjavíkur. Steinsnar frá Laugardalnum, stutt í miðbæinn og alla þjónustu.
Frábær fyrstu kaup!


Allar upplýsingar veitir Elka í síma 863-8813 eða á netfangið elka@fstorg.is

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. feb. 2023
46.450.000 kr.
53.000.000 kr.
59.6 m²
889.262 kr.
27. maí. 2021
37.250.000 kr.
42.900.000 kr.
59.6 m²
719.799 kr.
11. okt. 2019
31.300.000 kr.
36.600.000 kr.
59.6 m²
614.094 kr.
8. apr. 2016
21.650.000 kr.
30.700.000 kr.
59.6 m²
515.101 kr.
26. okt. 2010
15.450.000 kr.
12.800.000 kr.
59.6 m²
214.765 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone