Opið hús að Flétturima 19 í Grafarvogi (íbúð 203), milli kl 17:00 og 17:30 laug 22. mars.
Lýsing
SMELLTU HÉR til að fá sent söluyfirlit en annars veitir ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða gegnum thorey@landmark.is.
Nánari lýsing á eign:
Forstofa með fataskáp, parket á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu, bakaraofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa í opnu rými með eldhúsi, útgengt á vestursvalir, parket á gólfi.
Hjónaherbergi með fataskápum, parket á gólfi.
Barnaherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt að hluta með salerni, innréttingu og baðkari með sturtustöng.
Þvottahús með glugga, rúmgott með hillum og skolvask, flísar á gólfi.
Íbúðin greiðir í tvö húsfélög samtals kr. 28.283 á mánuði. Húsgjöld íbúðar í húsfélag Flétturima 19 eru kr.12.276 á mánuði en þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélags, allur hitakostnaður og rafmagn í sameign, þrif sameignar og sorpgeymslu. Húsgjöld íbúðar í húsfélag Flétturima 19-27 eru kr. 16.007 á mánuði en þá er allur almennur rekstur innifalinn og húseigendatrygging. Samþykktar framkvæmdir í húsfélagið Flétturima 19 er málun á stigagangi sem íbúar ætla að gera sjálfir, verið að safna.
Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Húsið var endurbætt að utan árið 2016 og var m.a. farið í múrviðgerðir, húsið málað að utan og þakpappi yfirfarinn árið 2019.
Hér er um að ræða vel skipulagða og fjölskylduvæna 3ja herbergja íbúð á barnvænum stað í Grafarvoginum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leik-og grunnskóla.
Allar frekari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 663 2300 eða gegnum thorey@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat