Opið hús: Urðartjörn 8, 800 Selfoss. Eignin verður sýnd sunnudaginn 23. mars 2025 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.
Lýsing
Um er að ræða steinsteypt endaraðhús með bílskúr í grónu hverfi á Selfossi sem hefur verið mikið endurnýjað og er steinsnar frá leikskóla. Stór pallur er framan við húsið og annar minni að aftanverðu. Tvö bílstæði eru við húsið.
Nánari lýsing:
Forstofan er rúmgóð og flísalögð með tvöföldum fataskáp.
Stofa og eldhús er í opnu sameiginlegu rými. Eldhúsið hefur verið endurnýjað að öllu leyti, innrétting er frá IKEA með sérsmíðuðum hurðum. Skúffur eru í neðri hluta innréttingar, þá fylgir vínkælir, innbyggð uppþvottavél, ísskápur og frystir. Í innréttingunni er búrskápur, tveir ofnar frá Elvita og innfellt Whirlpool helluborð á stórri eyju. Stór innfelldur stálvaskur og gott vinnupláss. Stofan er með stórum gluggum og skálagt harðparket frá Birgisson á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö; hjónaherbergið er parketlagt með fataskáp með rennihurðum og útgengt er á pall bak við húsið. Áfastur rúmgafl fylgir. Barnaherbergið er rúmgott og parketlagt.
Baðherbergið var endurnýjað árið 2019. Gólfið er flísalagt og veggir flísalagðir að hluta. Blöndurtæki eru frá Gröhe og baðskápur á vegg, speglaskápur og innrétting með handlaug frá IKEA. Þar er handklæðaofn, upphengt salerni, sturta með forsteyptum botni og glerveggjum.
Þvottahúsið var gert upp á svipuðum tíma og baðherbergið en það er flísalagt og með skolvaski í borði, skápum á vegg, handklæðaofni og þvottasnúrum. Auðvelt væri að útbúa 3ja svefnherbergið þar og færa þvottaaðstöðuna í bílskúrinn.
Bílskúrinn er um 14 fm og er með steyptu gólfi, heitu og köldu vatni, fjarstýrðri fleka-innkeyrsluhurð með gönguhurð.
Bárujárn með ljósum lit er á þaki hússins, gluggar og hurðir úr tré.
Lóðin er snyrtileg og nær fyrir enda hússins og afturfyrir, þar eru ræktunarkassar, um 8fm gróðurhús og pallur baka til. Einnig er stór pallur framan við húsið með skjólveggjum. Innkeyrslan malbikuð og hellulögð stétt er við inngang.
Leikskólinn Hulduheimar er við enda götunnar og stutt er í Sunnulækjarskóla og íþróttasvæði bæjarins.
Eiguleg eign á góðum stað.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs. í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.