Lýsing
Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna Smáratún 20 Selfossi, fallega, bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á annarri hæð, ris hæð, ásamt stórum bílskúr. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. Íbúðin er vel staðsett á Selfossi og matvöruverslanir í göngufæri ásamt skóla, leikskóla og annarri þjónustu.
Íbúðin sjálf er skráð 73,3 m2 hjá HMS og bílskúrinn er 54,8 m2.
Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á tölvupóstfangið hallgrimur@trausti.is eða hjá Kristjáni Baldurssyni með tölvupósti á kristjan@trausti.is.
Nánari lýsing eignar:
Komið er inn á parketlagt alrými stofu, borðstofu og eldhúss. Parketið er nýtt.
Stofa og borðstofa eru með parketi á gólfi, rúmgóðar og bjartar. Úr stofu er útgengt út á svalir sem snúa í suður.
Eldhúsið er rúmgott með snyrtiegri innréttingu, parket á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari með sturtuaðstöðu, flísalagt í hólf og gólf.
Hjónaherbergið er rúmgott og bjart, með parketi á gólfi.
Barnaherbergið er rúmgott og parket á gólfi.
Þvottaaðstaða er í eldhúsinu.
Bílskúrinn er mjög stór og er búið að koma fyrir íbúð í hluta hans sem hentar vel til útleigu.
Þessi íbúð er mjög snyrtileg og björt á góðum stað á Selfossi sem er eftirsótt staðsetning. Stutt er í alla þjónustu, skóla og leikskóla og nýja miðbæinn á Selfossi. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni löggiltum fasteignasala í síma 8966020 eða í tölvupóstfanginu hallgrimur@trausti.is eða hjá Kristjáni Baldurssyni með tölvupósti á kristjan@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.