Lýsing
Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Bjarta opna 107,9 fm 4ra til 5 herbergja endaíbúð með gluggum í þrjár áttir á 6. hæð í lyftuhúsi. Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús. Geymsla íbúðar í kjallara telur ekki í heildarfermetrafjölda íbúðarinnar og bætast þá nokkrir fermetrar við íbúðina. Bætt hefur verið við fjórða herberginu innan íbúðar.
Húsfélagið á tvær íbúðir í húsinu sem hjálpa til við viðhald á húsinu. Húsið var múrviðgert og málað árið 2015, skipt hefur verið um glugga í hluta íbúða í húsi, viðgerðir á lyftu, og hluta rafmagns í sameign auk þess sem stendur til að setja niður djúpgáma fyrir rusl og mögulega rafhleðslustöðvar.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.60-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is
Forstofa er með flísum á gólfi og skápum.
Hol er með parketi á gólfi.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á djúpar suðursvalir með miklu útsýni.
Eldhús er með flísum á gólfi, hvítri innréttingu, svartri borðplötu og flísum á milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergin eru 4 og eru með parketi á gólfum og skápar í þrem herbergjum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, ofn baðkar með sturtu, upphengt wc, vaskur, sturtuklefi þar sem nú er þvottavél og þurrkari.
Þvottahús er sameiginlegt á hæð þar sem hver íbúð á sinn skáp.
Geymsla er í sameign í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.