Upplýsingar
Byggt 1967
384,2 m²
11 herb.
4 baðherb.
6 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Útsýni
Sérinngangur
Lýsing
Sunnubraut 29. 200 Kópavogur. Hef fengið í einkasölu um 28 fm steypt bátaskýli sem stendur á einstaklega vel staðsettri suður sjávarlóð fyrir neðan götuna við sjóinn alveg við Kópavoginn sjálfan þar sem getur verið ótrúlega skjólgott og að auki er stórkostlegt útsýni út á Kópavoginn, Arnarnesið, Arnarnesvog, Lambhúsatjörn, Álftanesið, Bessastaði og víðar.
Það er ekki verið að tala um að það sé frábært útsýni yfir bæjarfélagið Kópavog heldur Kópavoginn sjálfan sem er vogurinn á milli sunnanverðs Kársness og norðanverðs Arnarness.
Með bátaskýlinu fylgir 356.2 fm einbýlishús á tveimur hæðum og er bátaskýlið óskráð á neðri hæðinni undir bílskúrnum þannig að heildarstærð eignarinnar eru um 384.2 fm.
Húsið stendur það utarlega á Kársnesinu að það er ekki í endalausri störukeppni við Arnarnesið.
Sunnubraut 29 á sölu hjá "hnyttna" fasteignasalanum
Sunnubraut 29 er einstök sjávarlóð sem stendur hátt sólarmegin og við sjóinn á Kársnesinu jafnvel þó að grafið sé frá húsinu sunnanmegin.
Það er grasivaxin hallandi renna í lóðinni frá bátaskýlinu niður að fjöru næstum því.
Lóðin er skráð 572 fm hjá HMS og merkt með hvítu en að auki er um 317 fm helguð lóð í suður, merkt með gulu á sérblaði sem er með eigninni á netinu. Samtals er því lóðin um 889 fm.
Sjá til nánari útskýringar á fylgiskjölum á netinu m.a. nýlegan lóðarleigusamning frá 2021 ásamt pósti frá Birki Rútssyni deildarstjóra Gatnagerðardeildar Kópavogs varðandi þessar helgunarlóðir sem eigendur þessarar lóðar og annarra lóða sjávarmegin við Sunnubrautina hafa notað undanfarna áratugi og helgað sér sem viðbót við lóðir sínar ónotað land Kópavogabæjar sem er í framhaldi af lóðum þeirra í suður.
Nett og ekki of hátt Valmaþak sem passar vel við við Fúnkisstíl hússins var bætt við ofan á húsið um c.a. 2000.
Þakið er með góðri aukaeinangrun samkvæmt teikningum og er samkvæmt teikningum fest ofan á útveggina og einnig fest við steypta slétta upprunalega þakið frá 1964.
Það er ein rúmgóð 2ja til 3ja herbergja aukaíbúð á neðri hæðinni vestanmegin í dag og einnig er frekar hrá útleigueining með sérinngangi í bátaskýlinu.
Húsið getur verið laust til afhendingar frekar fljótlega þar sem eigendur eru búnir að kaupa sér aðra eign sem var laus við kaupsamning.
Til að fá nánari upplýsingar og panta tíma til að skoða þessu miklu eign er best að hafa samband við Vilhjálm Bjarnason Löggiltan fasteignasala.
Best er að senda tölvupóst á ekkifjarfestir@gmail.com og einnig með SMS í síma 8228183. Opið hús verður auglýst síðar ef þess þarf.
Endurtek að senda fyrirspurnir á ekkifjarfestir@gmail.com því það er ólag á villi@vbeignir,is
Það er kominn tími á margt í þessu stóra húsi en það þarf þá ekki að sjá eftir að henda einhverju nýlegu þegar farið verður í að gera þetta hús að höll.
Það er heldur ekkert sem bannar nýjum kaupendum að flytja næstum því beint inn í þetta risastóra hús ef það hentar einhverjum.
Það virðist ekki vera mikið aðkallandi sem þarf að gera strax en það sem seljendur vita af að þarfnast viðhalds er talið upp hér fyrir neðan.
Eignin Sunnubraut 29 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 206-5467, birt stærð 356.2 fm.
Húsið er skráð byggt 1967 hjá fasteignaskrá HMS og er það sagt vera 328.2 fm einbýlishús á tveimur hæðum sem skiptist í 164.7 fm á efri hæðinni og 163.5 fm neðri hæð ásamt 28 fermetra bílskúr sem gerir samtals uppgefna 356.2 fermetra.
Þar að auki er áðurnefnt óskráð bátaskýli undir bílskúrnum og er það samkvæmt því líka 28 fm þannig að heildarfermetratala hússins með bátaskýlinu er því 384.2 fm.
Á einni teikningunni sem er með eigninni á netinu er sett fram hugmynd af breyttu og fallegra útliti suðurhliðar hússins sem snýr að sjónum ásamt betri nýtingu á öllum þessum 384.2 fm. Hugmyndin snýst um að grafa frá húsinu sunnan megin þannig að húsið fái að njóta sín og ná einnig með því betri tengingu beggja hæða hússins við frábæran suðurgarðinn þar sem er ótrúlega skjólgott og stórkostlegt útsýni út á Kópavoginn sjálfan, Arnarnesið, Arnarnesvog, Lambhúsatjörn, Áltfanesið, Bessastaði og miklu, miklu víðar.
Þegar búið er að grafa frá húsinu að sunnanverðu þá er tilvalið að setja þar suðurverönd beint út frá gólfhæð neðri hæðarinnar sem væri til dæmis gerð úr timbri, plasttimbri í fallegum lit eða steypt með litaðri steypu og þá væri hægt að steypa þar bæði stóran heitan pott og góðan kaldan pott ásamt einhverjum föstum setu- og sólbekkjum og skjólveggjum.
Auðvitað gera nýjir eigendur samt eins og þeir vilja við þetta frábærlega vel staðsetta hús.
Um upplýsingarskyldu eigenda og seljenda: Lögum samkvæmt eiga seljendur að veita væntanlegum kaupendum og fasteignasala upplýsingar um eignina og hugsanlega galla eða annað sem hann veit um og skipt getur máli fyrir kaupendur að vita fyrir ákvörðun um kaup á eign almennt og í samræmi við upplýsingaskyldu laga og þar á meðal laga um fasteignakaup.
Upplýsingar frá seljendum varðandi það sem þau muna eftir til að segja frá varðandi húsið. 1: Gamli olíutankurinn er ennþá niðurgrafinn við norð- austur hornið á efri hæðinni við bílastæðið. 2. Gler og gluggar er upprunalegt en það hefur einhvern tímann verið skipt um 3 stór gler á efri hæðinni. 3. Ofnalagnir: Koparlagnir í ofnalögnum að hluta á báðum hæðum sem þarf að skipta út. Lögn á milli herbergis og bílskúrs á efri hæð lokuð eftir leka. Hitastillar ofna í forstofu og v.m. undir stóra suðurglugganum í stofunni uppi og hugsanlega fleiri eru bilaðir. 4. Stamminn, frárennslislögnin fyrir skólpið frá þvottahúsi neðri hæðar var myndaður fyrir einhverju síðan og er óþéttur. Beðið eftir tilboði í fóðringu lagnarinnar. 5. Bílskúrshurðin er léleg og gönguhurðin ónýt, þakrennan á bílskúr er ónýt. 6. Parket á efri hæðinni er skemmt á nokkuð mörgum stöðum en það er frekar nýlegt og mögulega er hægt að pússa það upp og lakka eða olíubera það aftur. Parket er sennilega ónýtt í herberginu við hlið baðherbergis efri hæðar eftir leka frá ofnalögn sem búið er að loka fyrir. 7. Flísar í þvottaherbergi á efri hæð eru lausar. 8. Rafmagnstaflan, lagnir, tenglar og rofar hússins er allt upprunalegt.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og sérstaklega þegar um eldri eignir er að ræða.
VB Eignir fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þeir telji þörf á því. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru m.a. sóttar í opinberar skrár, til eiganda eignarinnar og eftir atvikum til húsfélags.
Fasteignasali skoðar eignina með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.