Lýsing
FASTMOS kynnir: Falleg og mikið endurnýjuð 97,0 m2, 4ra herbergja íbúð á 3. hæð við Unufell 50 í Reykjavík. Eignin er skráð 97,0 m2, þar af íbúð 92,2 m2 og geymsla 4,8 m2. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, eldhús og forstofuhol. Sérgeymsla á jarðhæð. Stutt í alla helstu þjónustu: leikskóli, grunnskóli, sundlaug, heilsurækt, bókasafn og matvöruverslanir. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Skv. upplýsingu frá seljanda er ný búið að skipta um eldhús, parket og mála íbúðina að innan. Nýlega var bætt við öðru baðherbergi.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing :
Forstofuhol með fataskápum og parketi á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi og innréttingu. Í innréttingu er helluborð, ofn, uppþvottavél og skolvaskur.
Stofa er með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir
Svefnherbergi nr 1 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr 2 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr 3 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi nr 1 er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Baðkar með sturtuaðstöðu og innrétting.
Baðherbergi nr 2 er með flísum á gólfi og í kringum klósettkassa. Sturtuklefi og innrétting.
Þvottahús er inn af eldhúsi. Flísar á gólfi og mikið hillupláss.
Eigninni fylgir fylgir 4,8 fm geymsla í kjallara hússins auk þess sem sameiginleg hjóla og vagnageymsla er í kjallara. Eitt stæði á bílaplani er merkt íbúðinni.
Verð kr. 64.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.