Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
parhús

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

953 Spánn - Costa Blanca

86.200.000 kr.

638.519 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F4000405

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
135 m²
svg
5 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG PARHÚS Í FYRSTU LÍNU Á LAS COLINAS GOLFVELLINUM*

SENNILEGA EIN BESTU KAUPIN Á LAS COLINAS Í DAG:
Vandað og fallegt parhús á tveimur hæðum á frábærum stað í lokuðum botlanga í 1. línu í Roble hverfinu á Las Colinas golfvellinum. Einstakt útsýni yfir golfvöllinn og fallegt gróið umhverfi. Stór einkagarður og aðgangur að fallegum sundlaugargarði, sem er sameiginlegur með nokkrum húsum í kring. Þar er útisturta og salernisaðstaða.
Las Colinas golfsvæðið hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu og er því hér um einstakt tækifæri að eignast vandað og gott hús á þessum vinsæla stað á frábæru verði. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. GOTT SKIPULAG,  þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Hátt er til lofts í stofunni, sem gefur góða rýmistilfinningu. Notalegur arinn í stofunni. Stór sólstofa framan við húsið sem hægt er að opna vel út í garðinn og tengja við verandirnar við húsið.
Tvær stórar verandir í suður og  stór sér garður með einstöku útsýni yfir golfvöllinn (2. og 8. hola). Frábær sólbaðsaðstaða bæði í garðinum og í notalegum sameiginlegum sundlaugargarði. Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn, þannig að hægt er að fylgjast með mannlífinu á golfvellinum úr notalegri fjarlægð. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.


Allar upplýsingar gefa
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495. 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is.  0034 615 112 869. 
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. karl@spanareignir.is. 00354  777 4277.

Nánari lýsing:

Neðri hæð: Rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt opnu eldhúsi. Þvottahús og geymsla inn af eldhúsi. Eitt svefnherbergi og baðherbergi.
Efri hæð: Tvö rúmgóð svefnherbergi, bæði með sér baðherbergi. Frábært útsýni yfir golfvöllinn.

Húsið er mjög prívat og vel staðsett í fallegu grónu umhverfi. Garðurinn er stór og hægt að setja einkasundlaug.

Stæði fyrir tvo bíla inni á lokaðri lóð.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Nýtt spa og líkamsræktarstöð, tennis, sameiginlegur sundlaugargarður ofl. Algjör lúxus fyrir vandláta.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.   La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb. Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða glæsilega eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.

Verð 595.000 evrur  + kostn. (86.200.000 ISK + kostn,  gengi 1Evra=145ISK)

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.
Húsið er í endursölu, en hefur fengið gott viðhald og er í góðu ástandi.
Húsið selst án húsgagna eða eftir samkomulagi.

Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar: www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, ofnakerfi, golf, útsýni,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.