Lýsing
Íbúðin skiptist í: Forstofu / hol, þrjú svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús, sérgeymslu á jarðhæð og 25,5 fm bílskúr. Sameiginlegt þvottahús er einnig á hæðinni.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu / hol með innbyggðum fataskáp, flísar á gólfum. Þrjú svefnherbergi og er fataherbergi /geymsmla innaf einu herberginu. Stofa er nokkuð rúmgóð með útgengi á suður svalir. Borðstofa er í framhaldi af stofu og er útgengi á norðvestur svalir úr borðstofu. Eldhús er rúmgott með borðkrók, snyrtileg innrétting með efri og neðri skápum, flísar á veggjum milli efri og neðri skápa. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, Walk-in sturta, upphengt salerni. Þvottahús er innan íbúðar með skolvaski og hillum, flísar á gólfum. Einnig er sameiginlegt þvottahús á hæðinni í sameign. Sérgeymsla á jarðhæð. Mjög rúmgóður bílskúr er staðsettur rétt við inngang í húsið. Gólfefni íbúðar: Parket og flísar á gólfum.
Frábær staðsetning við alla verslun og þjónustu. Leikskólar, grunnskóli og fjölbrautarskóli í göngufjarlægð. Stutt í sundlaug, íþróttasvæði, apótek, heilsugæslu og bókasafn.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram
Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat