Lýsing
Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í snyrtilegu fjölbýli með sérgeymslu og góðri sameign. Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands alls 73,20 fermetrar, þar af er geymsla 7,6 fermetrar. Íbúðin er í vel viðhöldnu húsi þar sem nýlega hafa verið gerðar umfangsmiklar viðgerðir á ytra byrði, m.a. á þaki, þakkanti, klæðningu og málningu árið 2023.
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í opið og snyrtilegt flísalagt forstofurými með góðum fataskáp.
Eldhús: Eldhúsið er með hvítum efri og neðri skápum, eldavél og tengi fyrir uppþvottavél. Dúkur á gólfi og borðkrókur við enda innréttingar.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð parketlögð stofa með gluggum sem snúa að nærumhverfi. Útgengt er úr stofu á góðar svalir með timburflísum á gólfi.
Hjónaherbergi: Stórt og bjart parketlagt svefnherbergi með góðum fataskápum sem ná meðfram framhliðum.
Barnaherbergi: Einnig parketlagt og með fataskáp. Vel nýtt rými.
Baðherbergi: Flísalagðir veggir og dúkur á gólfi. Baðinnrétting hefur verið endurnýjuð með neðri og efri skápum, sturtuklefi, salerni og handklæðaofn.
Geymsla: Sérgeymsla fylgir í kjallara.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.
Annað: Eignin er á vinsælum og fjölskylduvænum stað í Grafarvogi. Stutt í alla helstu þjónustu, leikskóla og grunnskóla. Eign sem vert er að skoða!
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – Löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is
Sími 450-0000
Netverðmat – Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður