Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Vista
svg

88

svg

82  Skoðendur

svg

Skráð  1. maí. 2025

fjölbýlishús

Ársalir 1

201 Kópavogur

90.900.000 kr.

829.380 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2252947

Fasteignamat

79.200.000 kr.

Brunabótamat

59.260.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2002
svg
109,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Hrönn Ingólfsdóttir lgf og Prima Fasteignasala kynna eignina Ársalir 1 á efstu hæð (12 hæð), nánar tiltekið eign merkt samkvæmt FMR 011204  /bílastæði merkt 03B36, fastanúmer eignar 225-2947 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

AFHENDING VIÐ KAUPSAMNING.

Samkvæmt HMS er eignin skráð 109,6 m2, þar af er geymsla 7,2 m2
Eignin er á efstu hæð (12 hæð) 2 lyftur eru í húsinu, eignin  skiptist í rúmgóða forstofu, gang, eldhús / borðstofu, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.-
Frábær staðsetning þaðan sem örstutt er í leikskóla, skóla, sundlaug, matvöruverslun, heilsugæslu og aðra þjónustu. -
Góð aðkoma er að húsinu og bílstæði í bílakjallara fylgir eigninni og er eignin á efstu hæð með mögnuðu útsýni. Tvö rúmgóð svefnherbergi.-Björt og rúmgóð stofa með gluggum á tvo vegu og fallegu útsýni- Eldhús með rúmgóðum borðkrók með glugga og miklu útsýni- Þvottahús er innaf eldhúsi- Mjög rúmgott baðherbergi með sturtuklefa og góðri innréttingu- Suðursvalir- Sér geymsla í sameign.- Bílastæði í bílahúsi.

Nánari lýsing: 
Forstofa: Mjög rúmgóð með fataskáp. Nýtist einnig sem sjónvarpsrými
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápar.  
Herbergi 2: Parket á gólfi og fataskápur. 
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, sturta, góð innrétting. 
Stofa:  Opin og björt. Gluggar á þrjá vegu. Parket á gólfi, útengt á svalir sem snúa til  suðurs.
Eldhús: Rúmgóð innrétting. Ný uppþvottavél. Bakaraofn í vinnuhæð, helluborð Þvottahús: Flísar á gólfi, skápar og hirslur Geymsla: Í kjallara. Stærð 7,2 m2 Sameiginleg vagna- og hjólageymsla í sameign á fyrstu hæð hússins.

Nánari upplýsingar veita:
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir lgfs. s: 692-3344 eða hronn@primafasteignir.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

img
Björgvin Þór Rúnarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Prima fasteignasala ehf
Suðurlandsbraut 6
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6
img

Björgvin Þór Rúnarsson

Suðurlandsbraut 6
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6

Björgvin Þór Rúnarsson

Suðurlandsbraut 6