Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2022
svg
148,3 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.

Lýsing

Prima fasteignasala kynnir: Stórglæsilegt og eitt flottasta húsið í sveitinni n.t. Ketilsstaðir lóð 9, Rangárþing ytra , fullbúið sumarhús á einni hæð á einstökum útsýnisstað. Útsýni er til flestra átta og afar friðsælt við Heklurætur.
Húsið er skráð 125,1 fm og svo er gestahús eða tómstundahús um 13,2 fm að auki. Húsið er að mestu álklætt, áltré gluggar eru í húsinu frá Byko.
Í stofu er rennihurð út á verönd. Hitaveita og gólfhiti er í öllu húsinu ásamt vönduðu rafkerfi frá Free@ home. Um 170 fm verönd er við húsið. Vandaðar innréttingar eru frá Fríform.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veita: Björgvin Þór Rúnarsson, bjorgvin@primafasteignir.is s:00354-855-1544 og Hrönn Ingólfsdóttir, hronn@primafasteignir.is, s: 692-3344

Stutt í sundlaugina á Laugalandi, golfvöllinn á Hellu og góður veitingastaður er á Landhóteli, svo eitthvað sé nefnt.
Þetta er staður og hús fyrir þá sem vilja vera út af fyrir sig með villta og fjölbreytta náttúru allt í kring, ásamt mikilli fjallasýn. Sumarhúsið er á 6.149 m2 eignalóð. 

Nánari lýsing eignar: 
Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu. Gesta snyrting er flísalögð.
Eldhús, stofa eru í stóru alrýmu, upptekin loft, falleg eyja með kvartssteini og vönduðum tækjum. 
Rennihurð úr stofu á stóra verönd.
Á herbergjagangi eru 3 herbergi.
Baðherbergi er flísalagt, sturta innrétting, hurð er af baði út á verönd þar sem gert er ráð fyrir heitum potti.
Þvottahús er flísalgt, innrétting.
Við húsið er 13,2 fm hús, parket er á gólfi. Tæki í eldhúsi og þvottahúsi fylgja.

Fyrir nánari upplýsingar:
Björgvin Þór Rúnarsson, bjorgvin@primafasteignir.is s:00354-855-1544
Hrönn Ingólfsdóttir, hronn@primafasteignir.is, s: 692-3344


Prima fasteignasala
Suðurlandsbraut 6.
108 Reykjavík


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Björgvin Þór Rúnarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Prima fasteignasala ehf
Suðurlandsbraut 6
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6
img

Björgvin Þór Rúnarsson

Suðurlandsbraut 6
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6

Björgvin Þór Rúnarsson

Suðurlandsbraut 6