Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt endaíbúð með 2.hæð með sérinngangi af opnum svalagangi við Fálkahöfða 6 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 103,8 m2, en þar af íbúð 99,0 og geymsla 4,8 m2. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, sjónvarpshol, eldhús, stofu/borðstofu og geymslu. Þetta er björt og skemmtileg eign í góðu hverfi á vinsælum stað í Mosfellsbæ, mjög stutt er í grunnskóla, leikskóla, sundlaug og líkamsrækt, en auk þess er golfvöllur og fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni. Eignin er laus við kaupsamning. Búið er að setja upp hleðslustöðvar við bílastæði.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Sjónvarpshol er með parketi á gólfi.
Eldhús er með innréttingu og borðkrók við útbyggðum glugga með fallegu útsýni. Í innréttingu er bakaraofn, helluborð, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél og vifta. Flísar á gólfi
Stofa/borðstofa er björt með harðparketi á gólfi. Úr stofunni er gengið út á svalir í suðvestur- til suðausturátt með fallegu útsýni.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og með innréttingu, baðkari og sturtu.
Svefnherbergi nr. 1 er rúmgott hjónaherbergi með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Þvottaherbergi er með flísum á gólfi og skolvask.Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara
Sérgeymsla er í sameign og er með hillum sem fylgja. Er skráð 4,8 m2
Verð kr. 73.900.000,-
ATH. Bílskúr sem er skráður á eigninna fylgir ekki með í kaupunum
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.