Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðbjörg Heimisdóttir
Vista
svg

63

svg

53  Skoðendur

svg

Skráð  7. maí. 2025

raðhús

Norðurbyggð 8

815 Þorlákshöfn

69.900.000 kr.

416.319 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2212541

Fasteignamat

62.800.000 kr.

Brunabótamat

83.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1989
svg
167,9 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu: Norðurbyggð 8, Þorlákshöfn.  Einstaklega vel skipulagt miðjuraðhús með 4 rúmgóðum svefnherbergjum og bílskúr.  Húsið er staðsett í rólegum botnlanga.

**Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com**

Húsið skiptist svo: 

*  Forstofa með flísum á gólfi, fataskáp og  fatahengi.   
4 rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi.  Skápar eru í  2 herbergjum.  Stór fataskápur er einnig í holi framan við svefnherbergi.
Rúmgóð stofa  með parketi á gólfi.  Úr stofunni er utangengt á hellulagðan sólpall sem snýr í suður. 
*  Eldhús með hvítri innréttingu og harðparketi á gólfi.
*  Fallegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, góðri innrétting, baðkari með sturtuþili. Góður frístandandi skápur er á baðherbergi.  
*  Bílskúr. Gólf steypt. Góð gryfja er í skúrnum sem er cirka 1,85cm á hæð, gólf í gryfju er steypt.Utangengt er úr skúr á suðurlóð.
*  Þvottaaðstaða er staðsett í bílskúrnum.
*  Geymsla er í enda bílskúrs.  
*  Bílaplan er hellulagt. 
   
*  Húsið þarfnast viðhalds að utan. Búið er að skipta  um glugga á suðurhlið hússins.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is

Fasteignasala Suðurlands

Fasteignasala Suðurlands

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. jún. 2017
21.700.000 kr.
29.900.000 kr.
167.9 m²
178.082 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasala Suðurlands

Fasteignasala Suðurlands

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
phone